Festi hf.: Endurkaup vika 30
Í 30. viku 2025 keypti Festi alls 195.000 eigin hluti fyrir 59.775.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
30 | 21.7.2025 | 11:19:46 | 30.000 | 312 | 9.360.000 |
30 | 22.7.2025 | 10:12:10 | 35.000 | 309 | 10.815.000 |
30 | 23.7.2025 | 10:12:20 | 40.000 | 307 | 12.280.000 |
30 | 24.7.2025 | 11:43:05 | 50.000 | 304 | 15.200.000 |
30 | 25.7.2025 | 10:14:10 | 40.000 | 303 | 12.120.000 |
195.000 | 59.775.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 731.226 hluti eða 0,23% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 680.000 eigin hluti fyrir 201.940.000 kr. og á í dag 926.226 hluti sem samsvarar 0,30% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 27. júní 2025 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 800 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().
