Festi hf.: Endurkaup vika 33
Í 33. viku 2023 keypti Festi alls 280.000 eigin hluti fyrir 54.602.500 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
33 | 14.ágú | 14:20:51 | 70.000 | 194,25 | 13.597.500 |
33 | 15.ágú | 12:36:06 | 70.000 | 195 | 13.650.000 |
33 | 16.ágú | 11:20:20 | 30.000 | 195,5 | 5.865.000 |
33 | 16.ágú | 13:39:05 | 40.000 | 196 | 7.840.000 |
33 | 17.ágú | 13:46:42 | 70.000 | 195 | 13.650.000 |
280.000 | 54.602.500 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 8.388.176 hluti eða 2,68% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 668.176 eigin hluti fyrir 128.767.365 kr. og á í dag 8.668.176 hluti sem samsvarar 2,77% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ().
