FESTI N1 Hf

Festi hf.: Ársuppgjör 2022

Festi hf.: Ársuppgjör 2022

EBITDA 2.293 millj. kr. á 4F og 10.020 millj. kr. fyrir 12M 2022

Helstu niðurstöður

  • Vörusala nam 31.744 millj. kr. samanborið við 26.428 millj. kr. árið áður og jókst um 20,1% milli ára.
  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6.871 millj. kr. Framlegðarstig nam 21,6% og lækkar um 3,1 p.p. mestmegnis vegna hækkunar á hrávöruverðum á heimsmarkaði milli ára.
  • Viðbótarkostnaður vegna nýs kjarasamnings á vinnumarkaði frá 1. nóvember sl. nam um 200 millj. kr. á fjórðungnum.
  • EBITDA nam 2.293 millj. kr. samanborið við 2.809 millj. kr. á 4F 2021, sem jafngildir 18,4% lækkun milli ára en lækkunin er 9,5% ef tekið er tillit til söluhagnaðar fasteigna 276 millj. kr. sem var á 4F 2021.
  • Icelandic Food Company ehf., 45% eignarhluti keyptur, verður dótturfélag í 100% eigu frá 1. janúar 2023.
  • Eigið fé í lok árs 2022 nam 34.460 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 36,9% samanborið við 39,4% í lok árs 2021.
  • Á árinu 2022 skila N1, ELKO og Krónan sinni bestu EBITDA afkomu frá upphafi ef ekki er tekinn með söluhagnaðar fasteigna hjá Krónunni á árinu 2021.
  • EBITDA fyrir árið 2022 nam 10.020 millj. kr. sem er í takt við miðgildi afkomuspár félagsins ef tekið er tillit til viðbótar kostnaðar nýs kjarasamnings frá 1. nóvember sl. sem var ekki inni í áætlunum.



Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og staðgengill forstjóra Festi:

Rekstur ársins 2022

Árið 2022 litaðist af mikilli hækkun heimsmarkaðsverða á hrávörum sem leiddi til aukinnar veltu og lækkunar á framlegðarstigi, sérstaklega í eldsneytishluta starfseminnar. Aukin verðbólga og mikil hækkun stýrivaxta sköpuðu einnig áskoranir í rekstrinum en þrátt fyrir þetta tókst öllum fyrirtækjum samstæðunnar, með markvissum aðgerðum, að skila einni bestu rekstrarafkomu sinni frá upphafi.

Stríðið í Úkraínu sem hófst í febrúar 2022 hafði mikil áhrif á heimsmarkaðsverð hrávara í heiminum sem hækkaði mikið. Verðbólga og mikil hækkun orkuverða á meginlandinu, hækkun flutningskostnaðar og fleiri lykilþátta í aðfangakeðjunni höfðu bein áhrif á innkaupsverð vara til hækkunar. Við í Festi og rekstrarfélögum erum meðvituð um ábyrgð okkar gagnvart viðskiptavinum og samfélaginu í heild. Við höfum kappkostað að leita allra leiða til að auka hagkvæmni í innkaupum og rekstri til að sporna gegn fyrrgreindum verðhækkunum þannig að þær skili sér ekki beint í vöruverð. Þar má nefna aðgerðir á borð við tímabundna verðfrystingu ákveðinna vara, aukið vöruframboð ódýrari valkosta, aukið skilvirkni í ferlum með nýjum stafrænum lausnum ásamt virku samtali við birgja félagsins til að finna leiðir til lækkun kostnaðar.

Breytingar á lykilstjórnendum á árinu 2022

Ásta Sigríður Fjeldsted var ráðin forstjóri Festi í september og tók við af Eggerti Þór Kristóferssyni, sem lét af störfum í júlí sama ár. Magnús Kr. Ingason fjármálastjóri Festi starfaði sem staðgengill forstjóra þar til Ásta var ráðin og aftur frá því hún fór í fæðingarorlof í byrjun nóvember. Guðrún Aðalsteinsdóttir tók við sem framkvæmdastjóri Krónunnar af Ástu S. Fjeldsted í september og Óttar Örn Sigurbergsson tók við sem framkvæmdastjóri ELKO 1. janúar af Gesti Hjaltasyni.

Framfaraverkefnin voru fjölmörg á árinu 2022

  • Nýjar starfseiningar, -staðsetningar og bætt þjónusta: Glæsilegar nýjar verslanir ELKO og Krónunnar opnuðu í Skeifunni á árinu, og einnig opnaði Krónan nýja verslun í Borgartúni og á Akureyri. Alls staðar var um að ræða stækkun og betri þjónustu. N1 opnaði sömuleiðis nýja þjónustumiðstöð á Mývatni og glænýtt bílaþjónustuverkstæði í Klettagörðum. N1 tók yfir rekstur Djúsí veitingastaðarins og fjölgaði stöðum þar sem Djúsí eru í boði ásamt Ísey Skyr börum. N1 rafmagn er einnig í mikilli sókn og gerði m.a. tímamótasamning við Reykjavíkurborg um kaup á allri almennri raforku frá og með áramótunum 22/23. Rafhleðslustöðvar N1 er nú að finna úti um allt land eða alls á 14 stöðum og verður fjölgað á næstu mánuðum.
  • Stafræn þjónusta við viðskiptavini: Rekstrarfélögin eru öll á mikilli ferð í innleiðingu á nýjum stafrænum lausnum til að bæta þjónustuupplifun viðskiptavina. N1 þjónustuappið fór í loftið á árinu þar sem hægt er að bóka dekkjaskipti, hlaða rafmagnsbílinn, skoða viðskiptasögu ofl. en vefverslun félagsins hefur tvöfaldast á árinu. Krónan kláraði innleiðingu á sjálfsafgreiðslulausninni Skannað og skundað í öllum sínum verslunum á árinu og hefur tvöfaldað veltu í gegnum Snjallverslun Krónunnar (vefverslun). ELKO innleiddi snjallspjall í vefverslun sinni á árinu sem er byltingakennd þjónusta þar sem viðskiptavinir fá söluráðgjöf frá starfsmanni í gegnum símann rétt eins og þeir væru staddir í verslun ELKO.
  • Nýmæli og umbætur í mannauðsmálum: Sem hluti af áherslu félagsins á skilvirkni og góð samskipti við og milli starfsfólks hefur starfsmanna-samskiptaforritið Relesys verið innleitt þvert á öll félögin. Markmiðið er að efla enn frekar innri samskipti og upplýsingagjöf, auka þjálfun og bjóða upp á rafræn námskeið m.a. í samstarfi við Akademias sem og auðvelda aðgengi starfsfólks að mannauðsteymi félaganna. Lýðheilsustefna og -aðgerðir fyrir starfsfólk voru styrkt og þróuð áfram.
  • Samfélagsleg ábyrgð: Festi og rekstrarfélög af sett sér skýr markmið þegar kemur að stuðningi við samfélagsleg málefni. Til að nefna nokkur verkefni sem farið var í á árinu: Fjárstuðningur til UNICEF fyrir börn á flótta í Úkraínu, stuðningur við EM kvenna 2022, hringrásarverkefni ELKO „Fáðu eitthvað fyrir ekkert“ þar sem hægt er að koma með gömul tæki, láta meta og fá inneign í ELKO, ásamt styrkjum til íþróttafélaga, góðgerðarsamtaka og annarra samfélagslegra innviða. Aukin áhersla á að vinna gegn matarsóun er sömuleiðis hluti af samfélagslegri ábyrgð Festi og rekstrarfélaganna.
  • Verðlaun og viðurkenningar: ELKO hlaut í fyrsta sinn í ár Jafnvægisvog FKA fyrir framlag til kynjajafnréttis, sem og viðurkenningu VR sem fyrirmyndarfyrirtæki. Krónan hlaut Íslensku Vefverðlaunin fyrir Skannað og skundað, Jafnvægisvog FKA, Hvatningarverðlaun jafnréttismála og Íslensku Ánægjuvogina í 6. sinn. N1 rafmagn hlaut viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki annað árið í röð. Forstjóri Festi fékk viðurkenningu FKA sem veitt eru fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd.

Stöðugur vöxtur og aukinn ábati þrátt fyrir áskoranir á mörkuðum

„Mörg spennandi verkefni bíða Festi á komandi misserum, m.a. stækkun verslunar Krónunnar úti á Granda og uppbygging nýrrar Krónuverslunar í Grafarholti. Endurnýjun ELKO verslunarinnar í Lindum og innleiðing nýrra sjálfsafgreiðsluskápa fyrir utan verslanir ELKO. Ennfremur uppbygging nýs verkstæðis á Flugvöllum, Keflavík, fjölgun rafhleðslustöðva sem og frekari viðbætur í þjónustuappi N1. Áframhald verður á uppbyggingu og fjölgun útsölustaða tilbúinna rétta á borð við Djúsí og Ísey skyrbar hjá N1 sem og WokOn, sushi og fleiri staða með tilbúna rétti innan Krónunnar.

Enn er beðið eftir niðurstöðu Borgarsögusafns varðandi mögulega friðun bygginga á eldsneytislóðum til að komast áfram með deiliskipulagsvinnu er varðar lóðirnar við Skógarhlíð, Stóragerði og Ægissíðu.

Mikil tækifæri liggja í rekstri félaganna á komandi árum með því að leggja sem fyrr áherslu á hagstætt verð, gæði og góða upplifun viðskiptavina. Staðsetningar þjónustustöðva okkar munu áfram laða til sín stóran hóp ferðamanna, innlenda sem erlenda, og spár um fjölgun þeirra styrkir enn frekar horfur fyrir komandi rekstrarár. Áfram verður lögð mikil áhersla á skilvirkni og hagræðingu í rekstri á komandi rekstrarári sem og auknu samstarfi innan samstæðunnar, hagkvæmum innkaupum og nýjum leiðum til að lækka einingakostnað hjá samstæðunni í heild.

Festi er með sterka fjárhagsstöðu og félagið vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan.“ segir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og staðgengill forstjóra Festi.

Vefstreymi fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 9. febrúar 2023

Vefstreymi fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 9. febrúar þar sem Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi og staðgengill forstjóra, mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum. Fundurinn hefst kl. 08:30.

Skráning á fundinn fer fram hér:

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð sem birtist fyrir neðan vefstreymið. Spurningum verður svarað að lokinni kynningu.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi:

Viðhengi



EN
08/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 7

Festi hf.: Buyback program week 7 In week 7 2026, Festi purchased in total 135,000 own shares for total amount of 46,145,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 709/02/202610:38              35.000342,00    11.970.000Week 710/02/202610:42              50.000342,00    17.100.000Week 711/02/202614:49              25.000343,00      8.575.000Week 712/02/202614:55              25.000340,00      8.500.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Public Limited Companies No 2/1995, Article 5 of the Regulation of the European parlia...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Endurkaup vika 7

Festi hf.: Endurkaup vika 7 Í 7. viku 2026 keypti Festi alls 135.000 eigin hluti fyrir 46.145.000 kr. eins og hér segir: VikaDagsetningTímiMagnVerðKaupverðVika 709/02/202610:38              35.000342,00    11.970.000Vika 710/02/202610:42              50.000342,00    17.100.000Vika 711/02/202614:49              25.000343,00      8.575.000Vika 712/02/202614:55              25.000340,00      8.500.000 Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjór...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Issuance of a New Bond Series

Festi hf.: Issuance of a New Bond Series Festi hf. has today completed the sale of a new bond series, FESTI 050331, issued under the Company’s ISK 8,000,000,000 issuance programme. The bonds are index-linked with a nominal value of ISK 4,200,000,000 and were sold at a yield of 3.95%. The bond series have five-year maturity with two equal payments per year. The settlement date is scheduled for 20 February 2026. Subsequently, an application will be submitted for the bonds to be admitted to trading on the Main Market of Nasdaq Iceland. The proceeds from the issuance will be used to refinanc...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Útgáfa á nýju skuldabréfi

Festi hf.: Útgáfa á nýju skuldabréfi Festi hf. lauk í dag sölu á nýjum almennum skuldabréfaflokki FESTI 050331, sem gefinn er út undir kr. 8.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Seld voru verðtryggð skuldabréf að nafnvirði 4.200.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,95. Skuldabréfaflokkurinn er til 5 ára með jöfnun afborgunum tvisvar á ári. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 20. febrúar 2026 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Afrakstri skuldabréfaflokksins verður varið til endurfjármögnunar á hluta af skuldum f...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual General Meeting March 5, 2026

Festi hf.: Annual General Meeting March 5, 2026 The Board of Directors of Festi hf. hereby announces that the Annual General Meeting of the company will be held on Thursday March 5, 2025, at 10.00 at the Company’s headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. Enclosed is the notice of the Annual General Meeting with its’ agenda, proposals for the meeting, Remuneration Policy and the reports of the Remuneration Committee and the Nomination Committee. Further information regarding the Annual General Meeting and documents can be accessed on the Company’s website:     For further information ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch