FESTI N1 Hf

Festi hf.: Skipulagsbreytingar hjá samstæðunni

Festi hf.: Skipulagsbreytingar hjá samstæðunni

Í dag taka gildi skipulagsbreytingar innan samstæðu Festi. Nýr framkvæmdastjóri N1 hefur verið ráðinn og tvær framkvæmdastjórastöður í Festi sameinaðar. Í þessum breytingum kveðja sjö starfsmenn sem fylgt hafa félaginu lengi og er þeim þakkað góð störf á liðnum árum. Tveir nýir eru ráðnir til starfa.

„Breytingarnar eru hluti af stefnumörkun félagsins um að létta á móðurfélaginu og efla enn frekar sjálfstæði hvers félags innan Festi. Skerpa fókus til aukins vaxtar og tryggja að fjárfestingum félagsins sé stýrt til réttra tækifæra og aukinnar verðmætasköpunar,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi.

Ýmir Örn Finnbogason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri N1 og tekur við starfinu 1. júní nk.

Hinrik Örn Bjarnason, sem starfað hefur innan framkvæmdastjórnar N1 frá 2013 og þar af sem framkvæmdastjóri félagsins frá ársbyrjun 2019, hefur látið af störfum. „N1 stendur á tímamótum með breyttri neysluhegðun og umbreytingu í orkuskiptum. Við þökkum Hinriki fyrir hans mikilvæga starf í vegferð N1 undanfarin ár um leið og við bjóðum Ými velkominn sem fær það hlutverk að taka enn stærri skref í að mæta þeim umbreytingum sem eru að eiga sér stað á markaðnum. Við hlökkum til þess að fá jafn framsækinn og öflugan mann og Ými í brúna,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi.

Ýmir Örn Finnbogason kemur frá Deloitte þar sem hann var yfirmaður viðskiptagreiningar frá 2021 og áður sérstakur fjármálaráðgjafi sjávarútvegsfyrirtækja í þjónustu Deloitte á árunum 2010-2012. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri Plain Vanilla Games og Teatime Games. Þar áður starfaði hann sem forstjóri Rammagerðarinnar árin 2004-2006. Ýmir Örn er með meistaragráðu í reikningshaldi og fjármálum frá Cass Business School í London og Bachelor gráðu í viðskiptafræði frá HR.

„Ég er afar spenntur fyrir því að ganga til liðs við N1, fyrirtæki sem stendur frammi fyrir miklum breytingum. Ég er þess fullviss að í þeim liggja fjölmörg tækifæri sem og í auknu samstarfi við önnur félög innan Festi. Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að taka þátt í að móta framtíð N1, fyrirtæki með einstaka sögu og gríðarlega sterkan og fjölbreyttan hóp starfsfólks og viðskiptavina“, segir Ýmir Örn Finnbogason.

Þá eru það stór tímamót að Kolbeinn Finnsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Festi, lætur nú af störfum. Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi tekur nú við sameinuðu sviði fjármála og rekstrar.

Kolbeinn hefur starfað hjá félaginu í hartnær 35 ár en hann hóf fyrst störf á fjármálasviði Olíufélagsins hf. árið 1987. Kolbeinn var deildarstjóri hagdeildar, síðar mannauðsstjóri og hefur setið óslitið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2002. „Við þökkum Kolbeini Finnssyni fyrir vel unnin störf og einstaka samfylgd með félaginu í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi.

Dagný Engilbertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður stefnumótunar á skrifstofu forstjóra og tekur til starfa 1. september nk. Dagný mun styðja við stefnumótun móðurfélagsins og þau verkefni sem eru á borði forstjóra. Dagný kemur frá stærsta orkufyrirtæki Danmerkur, Örsted, þar sem hún hefur starfað sem verkefnastjóri stefnumótunar. Hún var áður ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Kaupmannahöfn á árunum 2019-2021.

Fyrirspurnir beinist til forstjóra Festi, Ástu S. Fjeldsted,



EN
30/05/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 7

Festi hf.: Buyback program week 7 In week 7 2026, Festi purchased in total 135,000 own shares for total amount of 46,145,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 709/02/202610:38              35.000342,00    11.970.000Week 710/02/202610:42              50.000342,00    17.100.000Week 711/02/202614:49              25.000343,00      8.575.000Week 712/02/202614:55              25.000340,00      8.500.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Public Limited Companies No 2/1995, Article 5 of the Regulation of the European parlia...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Endurkaup vika 7

Festi hf.: Endurkaup vika 7 Í 7. viku 2026 keypti Festi alls 135.000 eigin hluti fyrir 46.145.000 kr. eins og hér segir: VikaDagsetningTímiMagnVerðKaupverðVika 709/02/202610:38              35.000342,00    11.970.000Vika 710/02/202610:42              50.000342,00    17.100.000Vika 711/02/202614:49              25.000343,00      8.575.000Vika 712/02/202614:55              25.000340,00      8.500.000 Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjór...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Issuance of a New Bond Series

Festi hf.: Issuance of a New Bond Series Festi hf. has today completed the sale of a new bond series, FESTI 050331, issued under the Company’s ISK 8,000,000,000 issuance programme. The bonds are index-linked with a nominal value of ISK 4,200,000,000 and were sold at a yield of 3.95%. The bond series have five-year maturity with two equal payments per year. The settlement date is scheduled for 20 February 2026. Subsequently, an application will be submitted for the bonds to be admitted to trading on the Main Market of Nasdaq Iceland. The proceeds from the issuance will be used to refinanc...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Útgáfa á nýju skuldabréfi

Festi hf.: Útgáfa á nýju skuldabréfi Festi hf. lauk í dag sölu á nýjum almennum skuldabréfaflokki FESTI 050331, sem gefinn er út undir kr. 8.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Seld voru verðtryggð skuldabréf að nafnvirði 4.200.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,95. Skuldabréfaflokkurinn er til 5 ára með jöfnun afborgunum tvisvar á ári. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 20. febrúar 2026 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Afrakstri skuldabréfaflokksins verður varið til endurfjármögnunar á hluta af skuldum f...

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual General Meeting March 5, 2026

Festi hf.: Annual General Meeting March 5, 2026 The Board of Directors of Festi hf. hereby announces that the Annual General Meeting of the company will be held on Thursday March 5, 2025, at 10.00 at the Company’s headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. Enclosed is the notice of the Annual General Meeting with its’ agenda, proposals for the meeting, Remuneration Policy and the reports of the Remuneration Committee and the Nomination Committee. Further information regarding the Annual General Meeting and documents can be accessed on the Company’s website:     For further information ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch