Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 8. apríl sl. er nú lokið.
Í viku 20 keypti Heimar hf. („Heimar“) 2.950.000 eigin hluti að kaupverði 109.310.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
13.5.2025 | 10:45 | 1.000.000 | 36,8 | 36.800.000 |
15.5.2025 | 10:56 | 1.000.000 | 36,6 | 36.600.000 |
16.5.2025 | 11:50 | 950.000 | 37,8 | 35.910.000 |
Samtals | 2.950.000 | 109.310.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 8. apríl 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026. Endurkaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið.
Heimar átti 10.995.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 13.945.000 hluti, eða um 0,79% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 499.344.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála –
