REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Boðað til hluthafafundar 22. september 2020 vegna hlutafjáraukningar.

REITIR: Boðað til hluthafafundar 22. september 2020 vegna hlutafjáraukningar.

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur ákveðið að boða til hluthafafundar þann 22. september 2020 þar sem meðal annars verður lögð fram tillaga um veitingu heimildar til stjórnar félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að 200.000.000 hluti. Verður fundurinn haldinn í fundarsölum H og I á Hotel Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Gert er ráð fyrir að nýir hlutir verði boðnir hluthöfum félagsins í forgangsréttarútboði, og að því frágengnu verði þeir boðnir í almennu útboði. Óskað verður eftir að stjórn Reita fái heimild til að ákveða útboðsgengi hinna nýju hluta, fresti til áskriftar og greiðslu og sölureglur.

Stjórn félagsins ákvað einnig á fundi sínum í dag að arðgreiðsla sú sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars sl. verði greidd út þann 9. september næstkomandi, en henni var frestað um óákveðinn tíma sbr. tilkynningu þar um þann 17. mars sl.

Drög að dagskrá fundarins:

  1. Tillaga stjórnar um heimild til hlutafjárhækkunar.
  2. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum.
  3. Önnur mál, löglega upp borin.

Hjálagt er fundarboð og tillögur stjórnar.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðjón Auðunsson, netfang , sími 660 3320

Viðhengi

EN
24/08/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15 Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 15. viku 2026 keyptu Reitir hf. 150.000 eigin hluti að kaupverði 17.250.000 kr. skv. sundurliðun hér á ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 25. mars 2026 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt, til að setja upp formlega endurkaupaáætlun og/eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum undir kaupréttaráætlun félagsins. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða til...

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - LSR

REITIR: Flöggun - LSR Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins  Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf.

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brimgörðum ehf. Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Íslandsbanki hf.

REITIR: Flöggun - Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Íslandsbanka Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch