REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Hækkun á útgáfuáætlun skuldabréfa og útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

REITIR: Hækkun á útgáfuáætlun skuldabréfa og útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í nýjum skuldabréfaflokki, REITIR150532.

Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 2,30% fasta ársvexti og er með lokagjalddaga 15. maí 2032 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Seld voru skuldabréf að nafnverði 7.000.000.000 króna á ávöxtunarkröfunni 2,34%.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna mánudaginn 30. nóvember og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Samhliða ákvörðun um útgáfu á nýjum flokki skuldabréfa ákvað stjórn Reita að hækka áður birta útgáfuáætlun félagsins á grundvelli núgildandi grunnlýsingar úr 10 milljörðum kr. að nafnverði í 15 milljarða kr. að nafnverði.

Fossar markaðir hafa umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: , sími 669 4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: , sími 522 4008.



EN
16/11/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 39. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 220.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Verksamningur við Þarfaþing hf. undirritaður um Kringlureit

REITIR: Verksamningur við Þarfaþing hf. undirritaður um Kringlureit Reitir fasteignafélag hf., fyrir hönd Reita - þróunar ehf. og Reita atvinnuhúsnæðis ehf., og Þarfaþing hf. hafa skrifað samning um alverktöku vegna byggingar fyrsta áfanga Kringlureits.  Samningsfjárhæð verksins nemur rúmum 10 milljörðum króna. Fjöldi íbúða verður í kringum 170. Ráðgert er að framkvæmdir muni taka um fjögur ár. Aðilar skrifuðu undir viljayfirlýsingu þann 21. ágúst sl. þar sem lýst var yfir sameiginlegum vilja til að ganga til samninga um samstarf vegna uppbyggingar íbúðarhúsnæðis með bílageymslu á Kringlur...

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 50,000 shares at 113.000ISK and the significance rating of the trade was 54/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti fruminnherja

REITIR: Viðskipti fruminnherja Sjá meðfylgjandi tilkynningu um viðskipti fruminnherja. Attachment

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 8.400.000 hlutir eða 1,21% í eigu félagsins við upphaf endurka...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch