REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Reita þann 11. mars 2022 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Áætlað er að kaupa allt að 6,5 milljónir hluta sem jafngildir 0,85% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 585 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst mánudaginn 26. september næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2023. Útgefið hlutafé Reita er 763.138.233 hlutir og eru 11 milljónir hluta eða 1,44% hlutafjár í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er að hámarki 25% af meðaldagsveltu á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast.

Arctica Finance hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á .



EN
23/09/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20 og 21

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20 og 21 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 15. maí 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 16. maí 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.                     Í 20. viku voru engin viðskipti. Í 21. viku 2025 key...

 PRESS RELEASE

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum á hóteli við Hlíðasmára í Kópavo...

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum á hóteli við Hlíðasmára í Kópavogi Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita og IS FAST-3, sem sjá má , tilkynnist að kaupsamningur hefur verið undirritaður.   Afhending mun fara fram þegar fyrirvörum í kaupsamningi Flóru hotels ehf. um rekstrarfélagið hefur verið aflétt.   Ráðgjafi seljenda í viðskiptunum var fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf.  Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 og á  og Kristófer Þór Pálsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga og greininga í síma 659 1700 og á .  

 PRESS RELEASE

REITIR: Samkomulag við Ríkiseignir vegna hjúkrunarheimilis

REITIR: Samkomulag við Ríkiseignir vegna hjúkrunarheimilis Reitir hafa gengið til samninga við Ríkiseignir um leigu á Nauthólsvegi 50 í Reykjavík undir rekstur hjúkrunarheimilis til næstu 20 ára. Fasteignin er um 6.500 fermetrar að stærð og mun hýsa 87 hjúkrunarrými og tengda starfsemi. Fasteignin hýsti áður höfuðstöðvar Icelandair. Fjárfesting Reita í hjúkrunarheimilum og öðrum tengdum innviðum er liður í samfélagslegri ábyrgð félagsins og stuðlar að nauðsynlegri uppbyggingu á hjúkrunarrýmum. Breytt aldursamsetning þjóðar og öldrun kallar á verulega aukningu slíkra rýma til þess að mæta ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.  Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunari...

 PRESS RELEASE

REITIR: Uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2025

REITIR: Uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2025 Góður tekjuvöxtur í kjölfar kröftugrar fjárfestingar á liðnu ári  Rekstur Reita á fyrstu þremur mánuðum ársins 2025 var góður og í takti við útgefnar horfur um afkomu. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 2.801 m.kr. og eykst um 187 m.kr milli ára eða 10,2%. Tekjur fjórðungsins voru 4.305 m.kr. sem er aukning um 384 m.kr. eða 9,8% og er sá vöxtur drifinn af verulegri fjárfestingu félagsins á liðnu ári, þar á meðal í markvissum eignakaupum, auk verðlagsbreytinga leigusamninga.   Félagið fjárfesti fyrir um 3 ma.kr. á fjórðungnum og hefu...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch