SVN SILDARVINNSLAN

Síldarvinnslan hf: Fyrirvarar vegna kaupa Síldarvinnslunnar hf. á Vísi hf. uppfylltir og hækkun hlutafjár

Síldarvinnslan hf: Fyrirvarar vegna kaupa Síldarvinnslunnar hf. á Vísi hf. uppfylltir og hækkun hlutafjár

Vísað er til tilkynningar Síldarvinnslunnar frá 10. júlí sl. um kaup félagsins á Vísi í Grindavík. Svo sem tilkynnt var um skyldi kaupverð fyrir Vísi samanstanda af hlutum í Síldarvinnslunni (70%) og reiðufé (30%). Viðskiptin voru eins og fram kom í tilkynningunni háð hefðbundnum fyrirvörum.

Síðustu fyrirvarar viðskiptanna voru uppfylltir í dag. Í samræmi við samþykki hluthafafundar Síldarvinnslunnar 18. ágúst sl. hefur stjórn félagsins nú samþykkt að hækka hlutafé félagsins um 145.939.749 kr. að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta sem afhentir verða seljendum í kjölfar uppgjörs viðskiptanna og að fengnu samþykki Fyrirtækjaskrár RSK og Nasdaq. Seljendur hafa undirgengist söluhömlur með þeim hætti að engir af hinum afhentu hlutum skulu seldir innan þriggja mánaða frá skráningu seljenda í hlutaskrá Síldarvinnslunnar. Að þeim tíma liðnum skal seljendum heimilt að selja þriðjung afhentra hluta. Að sex mánuðum liðnum er seljendum heimilt að selja þriðjung hlutanna til viðbótar og að tólf mánuðum liðnum frá skráningu seljanda í hlutaskrá skulu engar söluhömlur vera á hinum afhentu hlutum.

Stefnt er að því að uppgjör viðskiptanna fari fram 1. desember nk.

Nánari upplýsingar veitir:



Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.

Netfang:

Sími 470-7000



EN
17/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025 Árið 2025 var gott rekstrarár.Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.Sala góð og flestir markaðir sterkir.Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. Heildare...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2025 á fimmtudaginn kemur 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður aðgengileg þann sama dag kl. 16 þar sem Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og fer yfir ástand og horfur. Vefstreymið má nálgast á . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á

 PRESS RELEASE

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Skýrsla stjórnarEndurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingarTekin ákvörðun um greiðslu arðsTillaga stjórnar um starfskjarastefnuÁkveðin þóknun til stjórnar félagsins og...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025 Drög að stjórnendauppgjöri vegna ársins 2025 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun EBITDA afkoma ársins nema um USD 113 - 115 milljónir sem er nokkuð hærri en fyrri afkomuspá sem gerði ráð fyrir EBITDA afkomu að fjárhæð USD 96 – 104 milljónir. Er í drögunum gert ráð fyrir að hagnaður félagsins eftir skatta verði að fjárhæð USD 62 – 64 milljónir. Helstu ástæður hærri afkomu má rekja til sterkari markaða en einnig gekk síldarvertíð vel í lok ársins og var umfram áætlanir. Vinna við endurskoðun ársuppgjörs er í gangi og því geta lykiltölur e...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt Síldarvinnslan hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í félaginu. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Samningurinn kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 15 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 30 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskipta...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch