SVN SILDARVINNSLAN

Síldarvinnslan: Uppgjör annars ársfjórðungs 2022 og fyrri árshelmings 2022

Síldarvinnslan: Uppgjör annars ársfjórðungs 2022 og fyrri árshelmings 2022



  • Veiðar og vinnsla á kolmunna gengu vel á fjórðungnum.
  • Mjöl og lýsismarkaðir sterkir.
  • Kaup á 34,2% hlut í Arctic Fish Holding AS.
  • Markaðsskilyrði hafa verið hagstæð fyrir flestar afurðir fyrirtækisins.

Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins

  • Hagnaður tímabilsins á öðrum ársfjórðungi var 18,7 m USD og 46,2 m USD á fyrri árshelmingi.
  • Rekstrartekjur námu 67,1 m USD á öðrum ársfjórðungi og 167,7 m USD á fyrri árshelmingi.
  • EBITDA var 23,3 m USD eða 34,7% á öðrum ársfjórðungi og 55,8 m USD eða 33,3% á fyrri árshelmingi.
  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 728,8 m USD og eiginfjárhlutfall var 60,5%.

Rekstur

Tekjur á öðrum ársfjórðungi námu 67,1 m USD og 167,7 m USD á fyrri árshelmingi samanborið við 47,0 m USD á öðrum ársfjórðungi 2021 og 99,4 m USD á fyrri árshelmingi 2021. Rekstratekjur jukust þannig um 20,1 m USD á öðrum ársfjórðungi 2022 eða um 42,5% á milli tímabila. Tekjuaukningin skýrist fyrst og fremst af góðri kolmunnavertíð og sölu loðnubirgða sem framleiddar voru á fyrsta ársfjórðungi.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á öðrum ársfjórðungi nam 23,3 m USD eða 34,7% af rekstrartekjum, en á öðrum ársfjórðungi 2021 var EBITDA 12,8 m USD eða 27,2% af rekstrartekjum. EBITDA eykst því um 10,5 m USD á milli tímabila. Á fyrri árshelmingi 2022 var EBITDA 55,8 m USD eða 32,9%. Til samanburðar var hún 32,7 m USD eða 32,9% á fyrri árshelmingi 2021.

Hagnaður fyrir tekjuskatt var 22,5 m USD samanborið við 34,3 m USD á öðrum fjórðungi 2021. Á fyrri árshelmingi var hagnaður fyrir tekjuskatt 57,5 m USD samanborið við 59,5 á fyrri árshelmingi 2021. Tekjuskattur var 3,9 m USD og hagnaður annars ársfjórðungs 2022 því 18,7 m USD samanborið við 31,6 m USD hagnað fyrsta fjórðungs 2021. Hagnaður á fyrri árshelmingi var því 46,2 m USD samanborið við 52,6 á fyrri árshelmingi 2021. Það er vert að taka fram að um 23,6 m USD af hagnaði fyrri árshelmings 2021 kom til vegna afhendingar á hlutabréfum í SVN eignarfélagi til hluthafa Síldarvinnslunnar.

Efnahagur

Heildareignir námu 728,8 m USD í lok júní 2022. Þar af voru fastafjármunir 593,2 m USD og veltufjármunir 135,6 m USD. Í lok árs 2021 námu heildareignir 634,2 m USD og þar af voru fastafjármunir 472,4 m USD og veltufjármunir 161,7 m USD.

Fastafjármunir aukast því um 120,8 m USD og munar þar mestu um kaup á 34,2% hlut í Arctic Fish. Veltufjármunir dragast saman um 26,1 m USD og skýrist það að stærstum hluta af lækkun á handbæru fé sem lækkar um 49,3 m USD. Kemur það jafnframt til vegna kaupa á Arctic Fish.

Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 440,6 m USD. Eiginfjárhlutfall var 60,5% í lok tímabilsins en það var 66,6% í lok árs 2021.

Heildarskuldir og skuldbindingar félagsins voru 288,2 m USD og hækkuðu um 76,6 m USD frá áramótum. Vaxtaberandi skuldir voru 195,8 m USD í lok tímabilsins og hækkuðu um 72,5 m USD frá áramótum.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 27,5 m USD á fyrri árshelmingi 2022 en var 31,6 m USD á fyrri árshelmingi 2021. Fjárfestingahreyfingar voru 128,9 m USD og jákvæðar fjármögnunarhreyfingar 52,5 m USD. Handbært fé í lok tímabilsins nam 30,5 m USD.

Meginniðurstöður í íslenskum krónum á öðrum ársfjórðungi og fyrri árshelmingi 2022

Séu niðurstöður rekstrarreiknings ársfjórðungsins og fyrri árshelmingsins reiknaðar í íslenskum krónum á meðalgengi þess (1 USD=130,58 kr) voru rekstrartekjur ársfjórðungsins 8,8 milljarðar, EBITDA 3,0 milljarðar og hagnaður 2,4 milljarðar. Fyrir árshelminginn voru rekstrartekjur 21,9 milljarðar, EBITDA 7,3 milljarðar og hagnaður 6,0 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar í íslenskum krónum á gengi 30. júní 2022 (1 USD=133,72 kr) voru eignir samtals 97,5 milljarðar, skuldir 38,5 milljarðar og eigið fé 59,0 milljarðar.

Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutauppgjör fyrri árshelmings 2022 var samþykkt á stjórnarfundi Síldarvinnslunnar 18. ágúst 2022. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS- International Financial Reporting Standards).

Kynningarfundur 18. ágúst 2022

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn á vefstreymi fimmtudaginn 18. ágúst klukkan 17:00. Streymið verður aðgengilegt á vefsíðu Síldarvinnslunnar . Streymið verður einnig aðgengilegt á streymisrás Síldarvinnslunnar á youtube Þá verður hægt að senda spurningar á netfangið  og reynt verður að svara þeim á kynningarfundinum eftir fremsta megni.

Frá forstjóra

Reksturinn gekk vel á öðrum ársfjórðungi og var kolmunnaveiðin með besta móti. Framleiðsla í fiskimjölsverksmiðjum félagsins gekk vel og eru verð fyrir mjöl og lýsi sögulega há og útlit gott fyrir sölu. Sala loðnuafurða gekk vel á fjórðungnum og var afhent mikið af framleiðslu vetrarvertíðarinnar.

Það er lítilsháttar samdráttur bolfiskmegin þar var skip í slipp og svo er kvótasamdráttur að hafa áhrif.

        Nú á sumarmánuðum tilkynnti Hafrannsóknastofnun um ráðgjöf á helstu nytjastofnum í íslensku lögsögunni. Heilt yfir verður ráðgjöfin að teljast vonbrigði vegna áframhaldandi niðurskurðar í þorski og karfa. Fyrir Síldarvinnsluna vegur aukning á ýsuheimildum að hluta upp á móti skerðingum í öðrum bolfisktegundum. Það er jákvætt að sjá kvóta í íslensku síldinni sterkan annað árið í röð en stofninn virðist vera að ná sér vel á strik eftir sýkingar undanfarinna ára. Upphafsmælingar í loðnu gefa góð fyrirheit fyrir vetrarvertíð 2023 en bíða þarf ráðgjafar fyrir deilistofna til haustsins.

Síldarvinnslan tilkynnti í júní um kaup á 34,2% hlut í félaginu Arctic Fish en með þessum kaupum stígur Síldarvinnslan skref inn í laxeldi. Síldarvinnslan er þó ekki ókunn iðnaðnum enda var félagið á árum áður með laxeldi í Mjóafirði ásamt því að Fóðurverksmiðjan Laxá framleiðir mikið fóður sem fer í fiskeldi. Með kaupunum komumst við inn í öflugan hluthafahóp á skráðu félagi í norsku kauphöllinni. Stærsti hluthafi Arctic Fish hefur mikla reynslu og þekkingu af laxeldi og því mikið tækifæri fyrir Síldarvinnsluna að fá að koma að uppbyggingu félagsins.

        Eftir lok uppgjörstímabilsins var tilkynnt um kaup Síldarvinnslunnar á öllu hlutafé í sjávarútvegsfélaginu Vísi hf. Með kaupunum verður Síldarvinnslan meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins mælt í þorskígildum. Kaupin eru háð samþykki hluthafafundar og Samkeppniseftirlitsins auk áreiðanleikakönnunar. Vísir hf. er rótgróið félag í bolfiski en félagið starfar bæði í útgerð og landvinnslu. Vísir er einnig með erlenda sölu- og framleiðslustarfsemi.

Það er ljóst að með þessum kaupum verður samstæða Síldarvinnslunnar í efri mörkum við núgildandi reglur um kvótaþak. Ef við lendum yfir munum við hafa tíma til að leiðrétta þá stöðu.

Efnahagur félagsins er sterkur. Sjávarútvegur er sveiflukenndur og því er mikilvægt að fyrirtækin séu fjárhagslega sterk til að geta brugðist við sveiflum með skynsamlegum hætti. Þrátt fyrir þau kaup sem ráðist hefur verið í á undanförnum misserum er fjárhagur félagsins sterkur og við teljum spennandi tíma framundan við að vinna úr þeim tækifærum sem við teljum okkur hafa í höndunum.

Fjárhagsdagatal

3. ársfjórðungur 2022 – 24. nóvember 2022

Ársuppgjör 2022 – 9, mars 2023

Nánari upplýsingar

Gunnþór B. Ingvason, forstjóri

Viðhengi



EN
18/08/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025 Árið 2025 var gott rekstrarár.Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.Sala góð og flestir markaðir sterkir.Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. Heildare...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2025 á fimmtudaginn kemur 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður aðgengileg þann sama dag kl. 16 þar sem Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og fer yfir ástand og horfur. Vefstreymið má nálgast á . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á

 PRESS RELEASE

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Skýrsla stjórnarEndurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingarTekin ákvörðun um greiðslu arðsTillaga stjórnar um starfskjarastefnuÁkveðin þóknun til stjórnar félagsins og...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025 Drög að stjórnendauppgjöri vegna ársins 2025 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun EBITDA afkoma ársins nema um USD 113 - 115 milljónir sem er nokkuð hærri en fyrri afkomuspá sem gerði ráð fyrir EBITDA afkomu að fjárhæð USD 96 – 104 milljónir. Er í drögunum gert ráð fyrir að hagnaður félagsins eftir skatta verði að fjárhæð USD 62 – 64 milljónir. Helstu ástæður hærri afkomu má rekja til sterkari markaða en einnig gekk síldarvertíð vel í lok ársins og var umfram áætlanir. Vinna við endurskoðun ársuppgjörs er í gangi og því geta lykiltölur e...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt Síldarvinnslan hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í félaginu. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Samningurinn kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 15 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 30 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskipta...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch