Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 verður birt 15. maí – kynningarfundur sama dag kl. 16:15
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 15. maí nk.
Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 15. maí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni .
Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið
