SKEL fjárfestingafélag hf: Fyrirvarar uppfylltir í tengslum við kaup á Kletti – sölu og þjónustu ehf. og Klettagörðum 8-10 ehf.
Vísað er til tilkynningar, dags. 7. október sl., um kaup Skeljungs ehf., sem er í fullri eigu SKEL fjárfestingafélags, f.h. eignarhaldsfélags á öllu hlutafé í Kletti – sölu og þjónustu ehf. og SKEL á Klettagörðum 8-10 ehf.
Í dag fékkst staðfest að Samkeppniseftirlitið mun ekki aðhafast vegna kaupanna og þar með eru allir fyrirvarar viðskiptanna uppfylltir.
Ráðgert er að gengið verði endanlega frá viðskiptunum með greiðslu kaupverðs og afhendingu félaganna fyrir miðjan febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri, .
