SKEL Skeljungur hf.

SKEL fjárfestingafélag hf.: Sölutrygging vegna áskriftar að nýju hlutafé í samstæðu Orkunnar og Samkaupa

SKEL fjárfestingafélag hf.: Sölutrygging vegna áskriftar að nýju hlutafé í samstæðu Orkunnar og Samkaupa

Vísað er til fréttatilkynningar dags. 3. júní 2025, þar sem fram kom að tiltekin skilyrði samkvæmt kaupsamningi hefðu verið uppfyllt vegna kaupa Orkunnar IS ehf. („Orkan“), á öllum hlutum Kaupfélags Suðurnesja („KSK“) í Samkaupum, að nafnvirði 221.386.719 kr. eða því sem nemur 51,3% hlutafjár Samkaupa.

Í tilkynningunni kom m.a. fram að Orkan hefði undirritað kaupsamninga við aðra hluthafa Samkaupa um kaup á öllum hlutum þeirra í félaginu á sömu kjörum og viðskiptin við KSK fara fram á. Við uppgjör viðskiptanna yrði Orkan eigandi að um 96% af útgefnu hlutafé í Samkaupum. Í kjölfar framangreindrar tilkynningarinnar hefur Orkan gengið frá kaupsamningi við annan hluthafa og verður því eigandi að ríflega 98,5% hlut í félaginu. 

Í dag var svo komist að samkomulagi við Íslandsbanka um að bankinn veiti sölutryggingu um áskrift að nýju hlutafé í Orkunni (eða nýju móðurfélagi samstæðu) að verðmæti a.m.k. 2.000 m.kr. sem skal nýtt til að efla fjárhagsstöðu Samkaupa. Sölutryggingin mun gilda í 180 daga sem er unnt að nýta til að kynna nýja samstæðu fyrir fjárfestum. Endanlegri skjalagerð skal lokið fyrir 1. júlí nk.

Nú eru öll skilyrði kaupsamninga Orkunnar við hluthafa Samkaupa uppfyllt að undanskildu því að Samkeppniseftirlitið samþykki að í viðskiptunum felist ekki samruni sem beri að ógilda eða setja skilyrði fyrir samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samrunatilkynning hefur verið send en bíður staðfestingar.

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, 



EN
16/06/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Skeljungur hf.

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Allocation of stock options

SKEL fjárfestingafélag hf.: Allocation of stock options The Board of Directors of SKEL has decided to grant certain employees of the company stock options for up to 3,591,141 shares in the company. The stock option agreements are granted with the purpose of aligning the long-term interests of the company and its employees. The terms of the stock option agreements are in accordance with the stock option plan and the remuneration policy approved at the company’s Annual General Meeting on 7 March 2024, where the shareholders authorized the Board to allocate stock options to employees of the c...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Úthlutun kauprétta

SKEL fjárfestingafélag hf.: Úthlutun kauprétta Stjórn SKEL hefur ákveðið að veita tilteknum starfsmönnum félagsins kauprétti að allt að 3.591.141 hlutum í félaginu. Kaupréttarsamningarnir eru veittir í því skyni að samtvinna hagsmuni félagsins og starfsmanna til lengri tíma. Skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við kaupréttaráætlun og starfskjarastefnu sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 7. mars 2024, þar sem hluthafafundur samþykkti að veita stjórn heimild til að úthluta kaupréttum starfsmanna félagsins, annarra en þeirra lykilstjórnenda er fengu úthlutaða kauprétti á gru...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: The equity offering of Drangar hf. is comp...

SKEL fjárfestingafélag hf.: The equity offering of Drangar hf. is completed SKEL fjárfestingafélag hf. announced on 18 July 2025 that settlement regarding the purchase of share capital in Samkaup had been completed. Subsequently, Drangar hf., the parent company of Orkan, Lyfjaval and Samkaup, commenced operations. In recent weeks, the company has been presented to professional investors as an investment opportunity in connection with a share capital increase. Signed subscription commitments amounting to ISK 3.6 billion have been received, whereas the objective was to raise ISK 3 billion. A...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Hlutafjárútboði Dranga hf. er lokið

SKEL fjárfestingafélag hf.: Hlutafjárútboði Dranga hf. er lokið SKEL fjárfestingafélag hf. tilkynnti 18. júlí 2025 að uppgjöri vegna kaupa á hlutafé í Samkaupum væri lokið. Í kjölfarið hófu Drangar hf., móðurfélag Orkunnar, Lyfjavals og Samkaupa, starfsemi. Undanfarnar vikur hefur félagið verið kynnt fagfjárfestum sem fjárfestingakostur vegna aukningar hlutafjár. Borist hafa undirrituð áskriftarloforð að fjárhæð 3,6 milljarða króna, en markmiðið var að safna 3 milljörðum króna. Samhliða nýtti Íslandsbanki hf. kauprétt sem bankinn hafði vegna sölutryggingar og SKEL rétt til skuldbreytingar ...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Styrkás signs an agreement to acquire Hrei...

SKEL fjárfestingafélag hf.: Styrkás signs an agreement to acquire Hreinsitækni and HRT Þjónusta Styrkás hf., a company 45.7% owned by SKEL, has today signed an agreement to acquire all shares in Hreinsitækni ehf., HRT þjónustu ehf., and related companies. The share purchase agreement is subject to customary conditions, including the approval of the Icelandic Competition Authority. The Hreinsitækni group is a leading provider of environmental and infrastructure services for municipalities and businesses, with facilities and an equipment fleet in four regions of Iceland. The group employs ap...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch