SKEL Skeljungur hf.

SKEL fjárfestingafélag hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar

SKEL fjárfestingafélag hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar

Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf., sem haldinn var 9. mars 2023, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Stjórn SKEL hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar.  Áætlað er að kaupa að hámarki 18.518.518 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,956% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 250 milljónum króna að kaupverði.

Endurkaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf SKEL í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast. Endurgjald fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq OMX á Íslandi, hvort sem er hærra.

Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist fimmtudaginn 13. júlí 2023 og standi fram til 31. desember 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Kvika banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlun verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf.,



EN
12/07/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Skeljungur hf.

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Completion of the purchase of shares in Sa...

SKEL fjárfestingafélag hf.: Completion of the purchase of shares in Samkaup Reference is made to the press releases dated May 22, June 3, June 16, and July 15, 2025, announcing that certain conditions in the share purchase agreement had been fulfilled concerning Orkan IS ehf.’s (“Orkan”) acquisition of share capital in Samkaup hf. (“Samkaup”). Today, the companies Samkaup and Atlaga ehf. (formerly Heimkaup) were formally merged. Concurrently, the settlement of Orkan’s share purchase agreement with the former shareholders of Samkaup was finalized. The shareholders of Samkaup received 582,548...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Uppgjöri vegna kaupa á hlutafé Samkaupa lo...

SKEL fjárfestingafélag hf.: Uppgjöri vegna kaupa á hlutafé Samkaupa lokið Vísað er til fréttatilkynninga dags. 22. maí, 3. júní, 16. júní og 15. júlí 2025 þar sem kom fram að tiltekin skilyrði samkvæmt kaupsamningi hefðu verið uppfyllt vegna kaupa Orkunnar IS ehf. („Orkan“), á hlutafé í Samkaupum hf. („Samkaup“). Í dag voru félögin Samkaup og Atlaga ehf. (áður Heimkaup) sameinuð lögformlega Þá fór fram uppgjör á kaupsamningi Orkunnar við fyrrum hluthafa Samkaupa. Hluthafar Samkaupa fengu afhenta 582.548.510 hluti í Dröngum hf. ("Drangar") eða því sem nemur 28,7% hlutafjár, gegn afhendingu 9...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: The Competition Authority approves the mer...

SKEL fjárfestingafélag hf.: The Competition Authority approves the merger of Orkan and Samkaup Reference is made to press releases dated May 22, June 3, and June 16, 2025, which stated that certain conditions under the share purchase agreement had been fulfilled in relation to Orkan IS ehf.’s (“Orkan”) acquisition of shares in Samkaup hf. (“Samkaup”). The remaining condition for the transaction was that the Icelandic Competition Authority approved that the transaction does not constitute a merger that should be annulled or made subject to conditions under Article 17 of the Competition Act ...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Ork...

SKEL fjárfestingafélag hf.: Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Orkunnar og Samkaupa Vísað er til fréttatilkynninga dags. 22. maí, 3. júní og 16. júní 2025 þar sem sagði að tiltekin skilyrði samkvæmt kaupsamningi hefðu verið uppfyllt vegna kaupa Orkunnar IS ehf. („Orkan“), á hlutafé í Samkaupum hf. („Samkaup“). Eftirstandandi skilyrði vegna kaupanna var að Samkeppniseftirlitið samþykkti að í viðskiptunum felist ekki samruni sem beri að ógilda eða setja skilyrði fyrir samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið hefur nú lokið rannsókn. En það leit til upplýsinga í ...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Underwriting of subscription for new share...

SKEL fjárfestingafélag hf.: Underwriting of subscription for new share capital in the Orkan and Samkaup group Reference is made to the press release dated 3 June 2025, which stated that certain conditions under the purchase agreement had been fulfilled regarding the acquisition by Orkan IS ehf. (“Orkan”) of all shares held by Kaupfélag Suðurnesja (“KSK”) in Samkaup, with a nominal value of ISK 221,386,719, corresponding to 51.3% of the share capital in Samkaup. The announcement also stated that Orkan had signed purchase agreements with other shareholders of Samkaup for the acquisition of a...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch