SKEL Skeljungur hf.

Skeljungur hf.: Auglýsing frá tilnefningarnefnd um framboð til stjórnar Skeljungs hf.

Skeljungur hf.: Auglýsing frá tilnefningarnefnd um framboð til stjórnar Skeljungs hf.

Tilnefningarnefnd Skeljungs hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar Skeljungs sem haldinn verður 4. mars 2021.

Hlutverk tilnefningarnefndar er að hafa ráðgefandi hlutverk við val á stjórnarmönnum og leggur nefndin tillögur þess efnis fyrir aðalfund félagsins. Markmið með skipun tilnefningarnefndar er að koma á gagnsæju og skýru fyrirkomulagi tilnefninga stjórnarmanna á aðalfundi félagsins, sem m.a. skapar hluthöfum þess forsendur fyrir upplýstri ákvarðanatöku. Hlutverk nefndarinnar er að tryggja að stjórn félagsins hafi yfir að búa breidd í hæfni, reynslu og þekkingu. Jafnframt að færni stjórnarmanna sé af þeim toga að hún nýtist félaginu og dótturfélögum þess.

Allir stjórnarmenn þurfa að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995, sbr. 66. gr. laganna. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Skeljungs.

Óskað er eftir að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar, sjá meðfylgjandi eyðublað, eigi síðar en 28. janúar 2021 með tölvupósti á netfangið . Nefndin mun bjóða frambjóðendum að funda með sér þann 1. febrúar 2021.

Tillaga nefndarinnar að stjórn verður send út ásamt öðrum tillögum til aðalfundar þann 11. febrúar 2021. Rétt er þó að geta þess að nefndin áskilur sér rétt til þess að endurskoða tillögu sína þar til tíu dögum fyrir aðalfund. Lokafrestur til framboðs er fimm dögum fyrir aðalfund en nefndin mun ekki geta lagt mat á framboð sem berast eftir að tvær vikur eru til fundarins, sem haldinn verður þann 4. mars 2021. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.

Mikilvægar dagsetningar:

28. janúar   Tilnefningarnefnd óskar eftir að tilnefningar/framboð séu send fyrir lok þessa dags

1. febrúar    Viðtöl tilnefningarnefndar við frambjóðendur

11. febrúar  Skýrsla og tillaga tilnefningarnefndar send út ásamt fundarboði til aðalfundar

18. febrúar  Tilnefningarnefnd leggur ekki mat á framboð sem berast eftir kl. 16:00 þennan dag

22. febrúar  Frestur tilnefningarnefndar til að endurskoða tillögu sínar og senda út rennur út

27. febrúar  Framboðsfrestur rennur út kl. 16:00

2. mars        Eigi síðar en þennan dag skal birta endanleg framboð

4. mars        Aðalfundur Skeljungs 2021

Viðhengi



EN
05/01/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Skeljungur hf.

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Trading statement Q3 2025

SKEL fjárfestingafélag hf.: Trading statement Q3 2025 Enclosed is the trading statement of Skel fjárfestingafélag hf. for the third quarter of 2025.  For further information, or to request a meeting, please contact    Attachment

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Tilkynning eftir þriðja ársfjórðung 2025

SKEL fjárfestingafélag hf.: Tilkynning eftir þriðja ársfjórðung 2025 Meðfylgjandi er tilkynning Skel fjárfestingafélags hf. vegna þriðja ársfjórðungs 2025.  Sé óskað eftir nánari upplýsingum eða fundi vinsamlegast sendið tölvupóst . Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Shareholders’ Meeting 4 November 2025

SKEL fjárfestingafélag hf.: Shareholders’ Meeting 4 November 2025 The shareholders’ meeting of SKEL will be held at 4:00 PM on Tuesday, November 4, 2025, in Ballroom B at the Reykjavík Edition, Austurbakki 2, 101 Reykjavík. Attached are the meeting agenda and the final proposals to be presented at the meeting. The proposals and agenda are unchanged from those announced when the meeting was called on October 14.  All meeting materials can be found on the company’s website: . For further information, please send an email to . Attachments ...

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Hluthafafundar 4. nóvember 2025

SKEL fjárfestingafélag hf.: Hluthafafundar 4. nóvember 2025 Hluthafafundur SKEL verður haldinn kl. 16:00, þriðjudaginn 4. nóvember 2025 í Ballroom B salnum á Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík. Viðfest er dagskrá fundarins og endanlegar tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn. Tillögurnar og dagskráin eru óbreyttar frá því að boðað var til fundarins 14. október sl.  Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins:  Sé óskað eftir nánari upplýsingum vinsamlegast sendið tölvupóst á . Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKEL fjárfestingafélag hf.: Shareholders’ Meeting 4 November 2025

SKEL fjárfestingafélag hf.: Shareholders’ Meeting 4 November 2025 The Board of SKEL convenes a shareholders’ meeting at 16:00, Tuesday, 4 November 2025, in Ballroom B at the Reykjavík Edition, Austurbakki 2, 101 Reykjavík. Attached are the meeting agenda, the notice of meeting, and the Board’s proposals for the meeting. All meeting materials can be found on the company’s website: See below a statement from the Board regarding the shareholders’ meeting: “At the annual general meeting of SKEL fjárfestingafélag hf. on 6 March 2025, shareholders approved that the company would pay a divide...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch