Skeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 14.-15. viku 2020, keypti félagið 6.000.000 eigin hluti fyrir 43.980.000 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr) |
3.4.2020 | 09:38:15 | 1.500.000 | 7,22 | 10.830.000 |
6.4.2020 | 11:22:12 | 1.500.000 | 7,30 | 10.950.000 |
7.4.2020 | 13:31:53 | 1.500.000 | 7,40 | 11.100.000 |
8.4.2020 | 09:30:16 | 1.500.000 | 7,40 | 11.100.000 |
Samtals | 6.000.000 | 43.980.000 |
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. mars 2020.
Skeljungur hefur nú keypt samtals 19.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 76,55% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 141.140.000 krónum. Skeljungur á nú samtals 19.000.000 hluti, eða 0,96% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki vera hærra en kr. 250.000.000, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess mega mest eiga 10% hlutafjár þess. Endurkaupaáætlunin verður í gildi fram að aðalfundi félagsins 2021, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, ,
Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum og smásala. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, Kvikk og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.