Skeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 43. og 44. viku 2020, keypti félagið 4.500.000 eigin hluti fyrir 36.615.000 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
23.10.2020 | 10:52 | 1.500.000 | 8,16 | 12.240.000 |
27.10.2020 | 11:01 | 1.500.000 | 8,13 | 12.195.000 |
28.10.2020 | 09:36 | 970.000 | 8,12 | 7.876.400 |
28.10.2020 | 09:37 | 530.000 | 8,12 | 4.303.600 |
Samtals | 4.500.000 | 36.615.000 |
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 8. október 2020. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Skeljungur hefur nú keypt samtals 16.500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 52,62% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verður keypt fyrir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 131.557.500 krónum. Skeljungur átti áður en fyrrnefnd áætlun hófst 24.820.946 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,25% af útgefnu hlutafé.
Skeljungur á nú samtals 41.320.946 hluti, eða um 2,08 % af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki vera hærra en kr. 250.000.000, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess mega mest eiga 10% hlutafjár þess. Endurkaupaáætlunin verður í gildi fram að aðalfundi félagsins 2021, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, ,