SFS B Slaturfelag Sudurlands Svf

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 12. júní 2020

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 12. júní 2020



Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf.

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 12. júní 2020 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð.

1. Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2019.

2.  Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykkt

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 12,66%  arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 2,66% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 22.797.411,- eða 0,13 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 3,0% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 10.642.637,-  Arðleysisdagur er 15. júní og arðréttindadagur er 16. júní.  Greiðsludagur arðs er 24. júní n.k.

3.  Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins samþykkt

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að gætt sé kynjahlutfalls í varastjórn og óheimilt sé að tilnefna fólk til aðalstjórnarstarfa sem ekki er á auglýstum framboðslista allt þar til sjálf kosningin fer fram.

Breytingar sem lagðar eru til á 27. gr. eru undirstrikaðar og með rauðu letri:

27. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum og fimm varamönnum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna til eins árs í senn. Í aðal- og varastjórn skal hlutfall hvors kyns fyrir sig ekki vera lægra en 40%.

Stjórn skal auglýsa með opinberum hætti eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar með lok framboðsfrests þremur vikum fyrir félagsfund þar sem stjórnarkjör fer fram. Stjórn skal tilkynna aðalfundarfulltrúum með auglýsingu eða dreifibréfi (rafpósti) um hverjir eru frambjóðendur til stjórnar og varastjórnar ekki síðar en tveimur vikum fyrir félagsfund þar sem stjórnarkjörið fer fram. Á félagsfundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá, er ávallt heimilt að tilnefna fólk til varastjórnarstarfa sem ekki er á auglýstum framboðslista allt þar til sjálf kosningin fer fram.

           

Allir aðalstjórnarmenn skulu kosnir á sama tíma og varastjórnarmenn með sama hætti eftir að kjöri aðalstjórnar er lokið. Hver fulltrúi á félagsfundi þar sem stjórnarkjör fer fram getur greitt einum til fimm frambjóðendum til stjórnar atkvæði sitt. Þeir stjórnarmenn sem flest atkvæði hljóta skulu réttkjörnir til stjórnarstarfa næsta kjörtímabil með þeirri undantekningu þó, að skili kosningin ekki réttum hlutföllum hvors kyns fyrir sig í aðal- og varastjórn til samræmis við ákvæði 1. mgr., þá skulu atkvæðaflestu frambjóðendur til aðal- og varastjórnar af gagnstæðu kyni sem hallar á við stjórnarkjörið, taka sæti í stjórn, einn eða tveir, eins og nauðsynlegt er til að lögmætu hlutfalli milli kynjanna verði náð, og þar með víkja þeim frambjóðendum til aðal- og varastjórnar af gagnstæðu kyni sem þó hafa hlotið fleiri atkvæði við stjórnarkjörið.

Ef aðalmaður deyr, gengur úr félaginu eða víkur úr stjórninni á löglegan hátt, áður en kjörtíminn er liðinn, tekur sá varamaður sæti til fulls í hans stað sem flest atkvæði fékk í kjöri varastjórnar þó þannig að lögmætu hlutfalli kynjanna sé haldið. Enginn félagsmaður getur skorast undan kosningu í stjórn félagsins, nema um jafnmörg ár og hann hefur næst áður verið í stjórninni og með samþykki hans má endurkjósa hann í stjórn.

Félagsstjórnin velur árlega formann og varaformann úr sínum flokki.

4.  Kosning stjórnar

Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:

Aðalmenn:

Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449

Kristinn Jónsson, varaformaður, kt. 020460-3939

Ingibjörg Daníelsdóttir, ritari, kt. 081254-5329

Guðrún S. Magnúsdóttir, kt. 270875-5729

Sverrir Gíslason, kt. 060469-4319

Til vara:

Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119

Gunnar Sigurjónsson, kt. 170166-3299

Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, kt. 260864-5489

Oddný Steina Valsdóttir, kt. 020480-4919

Þorsteinn Logi Einarsson, kt. 221082-5169

5.  Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda

Löggiltur endurskoðandi:

Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur

Skoðunarmenn:

Aðalmenn:

Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509

Jónas Erlendsson, kt. 230263-7369

Varaskoðunarmenn:

Finnur Pétursson, kt. 260662-2609

Ragnar Lárusson, kt. 141057-4569

6. Laun stjórnar og skoðunarmanna

Stjórnarformaður kr. 1.297.000,-  á ári.

Meðstjórnendur kr.  648.000,-  á ári.

Skoðunarmenn kr. 170.000,- á ári.

Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 170.000,-  á ári.

EN
12/06/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Slaturfelag Sudurlands Svf

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands svf. - Sveinn Rafn Eiðsson ráðinn í starf fjárm...

Sláturfélag Suðurlands svf. - Sveinn Rafn Eiðsson ráðinn í starf fjármálastjóra SS Sláturfélag Suðurlands svf. – Sveinn Rafn Eiðsson ráðinn í starf fjármálastjóra SS Sveinn Rafn Eiðsson hefur verið ráðinn í starf fjármálastjóra félagsins. Sveinn Rafn tekur við starfinu 1. júlí næstkomandi af Hjalta H. Hjaltasyni sem gengt hefur starfinu í 38 ár. Sveinn Rafn er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.acc. gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann er löggiltur endurskoðandi auk þess að hafa próf í verðbréfaviðskiptum. Sveinn Rafn hefur yfirgrips...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 21. mars 2025

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 21. mars 2025 Sláturfélag Suðurlands svf Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 21. mars 2025 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð. 1. ÁrsreikningurAðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2024. 2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykktStjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 14,77% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 4,77% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 29...

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2024

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2024 Sláturfélag Suðurlands hefur gefið út ársskýrslu ársins 2024. Sjá má skýrsluna í viðhengi.  Attachment

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á að...

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 21.mars 2025 Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 21. mars 2025. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum: Til setu í aðalstjórnGuðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu, 806 SelfossiHallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli, 301 AkranesiLilja Guðrún Eyþórsdóttir, Vestri-Reynir, 30...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 21....

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 21.mars 2025 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 21. mars 2025 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00. Dagskrá: Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.Skýrsla stjórnar félagsins.Starfsemi félagsins á liðnu ári.Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.Skýrsla skoðunarmanna.Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóð...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch