SFS B Slaturfelag Sudurlands Svf

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2019

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2019

Reykjavík, 20. febrúar 2020.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2019

•          Rekstrartekjur ársins 12.069 m.kr. en 11.571 m.kr. árið 2018

•          78 m.kr. hagnaður á árinu á móti 179 m.kr. árið áður

•          EBITDA afkoma var 727 m.kr. en 790 m.kr. árið 2018

•          Eigið fé 5.336 m.kr. og eiginfjárhlutfall 54%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2019 var 78 m.kr. skv. rekstarreikningi.  Árið áður var 179 m.kr. hagnaður.  Lakari afkoma skýrist af verri afkomu dótturfélaga en afkoma þeirra versnaði um 97 m.kr. milli ára. Eigið fé er 5.336 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 54%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 12.069 m.kr. árið 2019, en 11.571 m.kr. árið áður og hækka því um 4%.  Aðrar tekjur voru 99 m.kr. en 151 m.kr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 5.651 m.kr. en 5.361 m.kr. árið áður.  Launakostnaður var 3.612 m.kr. og hækkaði um tæp 5%, annar rekstrarkostnaður var 2.177 m.kr. og hækkaði um 3%.  Afskriftir hækkuðu um 11%.  Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 253 m.kr., en 360 m.kr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 727 m.kr. en var 790 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 196 m.kr., en voru 135 m.kr. árið áður.  Gengistap var 17 m.kr. samanborið við 3 m.kr. gengishagnað árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 29 m.kr.

Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 8 m.kr. en 46 m.kr. árið áður.  Hagnaður af rekstri ársins var 78 m.kr. en 179 m.kr. árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 717 m.kr. árið 2019 samanborið við 787 m.kr. árið 2018.  Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2019 voru 9.880 m.kr. og eiginfjárhlutfall 54%.  Veltufjárhlutfall var 2,3 árið 2019, en 2,1 árið áður.

Í upphafi árs innleiddi samstæðan IFRS 16 um leigusamninga og koma áhrifin fram í rekstrar- og efnahagsreikningi.

Fjárfest var á árinu fyrir 359 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 1.057 m.kr. árið áður.  Seldar voru eignir fyrir 41 m.kr.  Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 47 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 277 m.kr. og bifreiðum 35 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2019 var í aprílmánuði greiddur 13,26% arður af B-deild stofnsjóðs alls 24 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 17 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Öll útgefin hlutabréf (B-deild stofnsjóðs) í félaginu verða rafrænt skráð frá og með 17. apríl 2020.  Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2020 þann 20. ágúst 2020.

Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 20. mars n.k.  Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 12,66% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 2,66%, alls 22,8 m.kr. eða 0,13 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 3% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 10,6 m.kr.

Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 54% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,3. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 2.065 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 95 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma.

Afkoma Sláturfélagsins versnaði milli ára vegna lakari afkomu dótturfélaga. Gripið hefur verið til hagræðingaraðgerða sem áætlað er að skili sér í bættri afkomu þeirra á árinu 2020.

Þrátt fyrir tæplega 7% samdrátt í kindakjötsframleiðslu á landsvísu jókst sauðfjárinnlegg hjá SS milli ára sem hafði jákvæð áhrif á rekstur afurðahluta félagsins. Gert er ráð fyrir að kindakjötsframleiðsla dragist enn frekar saman á árinu 2020 og aðlagist betur að innanlandsmarkaði. Gert er ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum áhrifum af nýjum EB tollasamningi, sérstaklega vegna opnunar fyrir ferskt erlent kjöt.

Kjötiðnaður félagsins stendur traustum fótum og afkoma batnaði á árinu. Á árinu var fjárfest í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði.

Innflutningshluti félagsins gekk vel á árinu.  Góð tækifæri eru til frekari vaxtar enda félagið í samstarfi við leiðandi aðila á sínu sviði.

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 2020                                   20. mars 2020

Janúar – júní 2020 uppgjör                    20. ágúst 2020

Júlí – desember 2020 uppgjör                18. febrúar 2021

Aðalfundur 2021                                   19. mars 2021

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 –

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 –

Viðhengi

EN
20/02/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Slaturfelag Sudurlands Svf

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands svf. - Sveinn Rafn Eiðsson ráðinn í starf fjárm...

Sláturfélag Suðurlands svf. - Sveinn Rafn Eiðsson ráðinn í starf fjármálastjóra SS Sláturfélag Suðurlands svf. – Sveinn Rafn Eiðsson ráðinn í starf fjármálastjóra SS Sveinn Rafn Eiðsson hefur verið ráðinn í starf fjármálastjóra félagsins. Sveinn Rafn tekur við starfinu 1. júlí næstkomandi af Hjalta H. Hjaltasyni sem gengt hefur starfinu í 38 ár. Sveinn Rafn er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.acc. gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Hann er löggiltur endurskoðandi auk þess að hafa próf í verðbréfaviðskiptum. Sveinn Rafn hefur yfirgrips...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 21. mars 2025

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 21. mars 2025 Sláturfélag Suðurlands svf Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 21. mars 2025 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð. 1. ÁrsreikningurAðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2024. 2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykktStjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 14,77% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 4,77% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 29...

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2024

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2024 Sláturfélag Suðurlands hefur gefið út ársskýrslu ársins 2024. Sjá má skýrsluna í viðhengi.  Attachment

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á að...

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 21.mars 2025 Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 21. mars 2025. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum: Til setu í aðalstjórnGuðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu, 806 SelfossiHallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli, 301 AkranesiLilja Guðrún Eyþórsdóttir, Vestri-Reynir, 30...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 21....

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 21.mars 2025 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 21. mars 2025 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00. Dagskrá: Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.Skýrsla stjórnar félagsins.Starfsemi félagsins á liðnu ári.Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.Skýrsla skoðunarmanna.Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóð...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch