REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita

REITIR: NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita

Reitir hf. hafa undirritað samkomulag um tæplega 4,4 ma. kr. verðtryggða lánsfjármögnun frá Norræna fjárfestingarbankanum NIB, sem styður við tvö uppbyggingarverkefni undir heilsutengda starfsemi.  

Fjármögnunin frá NIB nær til 10 ára og mun styðja við uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili við Nauthólsveg og læknamiðstöð við Ármúla 7-9 en heildarkostnaður verkefnanna er um 8,8 ma. kr. Verkefnin eru til þess fallin að mæta áskorunum í heilbrigðiskerfinu og falla vel að stefnu Reita um að þróa og byggja upp fasteignir sem þörf er á í samfélaginu. 

Hjúkrunarheimili við Nauthólsveg

Við Nauthólsveg 50 stendur yfir umbreyting á skrifstofuhúsnæði í hjúkrunarheimili sem mun rúma 87 íbúa og er áætlað að það taki til starfa fyrri hluta árs 2027. Í maí 2025 skrifuðu Reitir undir leigusamning við Ríkiseignir til 20 ára um útleigu á húsnæðinu.

Heilbrigðisþjónusta og skurðaðgerðir í Ármúla 

Uppbygging á nýrri læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9 munu veita skjótari aðgang að aðgerðum sem ekki eru bráðar og sérfræðitímum, og hjálpa þannig til við að létta álagi á opinbera heilbrigðiskerfið. 

Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson og Einar Þorsteinsson





EN
17/04/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita

REITIR: NIB fjármagnar heilsutengd þróunarverkefni Reita Reitir hf. hafa undirritað samkomulag um tæplega 4,4 ma. kr. verðtryggða lánsfjármögnun frá Norræna fjárfestingarbankanum NIB, sem styður við tvö uppbyggingarverkefni undir heilsutengda starfsemi.   Fjármögnunin frá NIB nær til 10 ára og mun styðja við uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili við Nauthólsveg og læknamiðstöð við Ármúla 7-9 en heildarkostnaður verkefnanna er um 8,8 ma. kr. Verkefnin eru til þess fallin að mæta áskorunum í heilbrigðiskerfinu og falla vel að stefnu Reita um að þróa og byggja upp fasteignir sem þörf er á í sa...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15 Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 15. viku 2026 keyptu Reitir hf. 150.000 eigin hluti að kaupverði 17.250.000 kr. skv. sundurliðun hér á ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 25. mars 2026 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt, til að setja upp formlega endurkaupaáætlun og/eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum undir kaupréttaráætlun félagsins. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða til...

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - LSR

REITIR: Flöggun - LSR Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins  Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf.

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brimgörðum ehf. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch