Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðunar fjármálaeftirlitsnefndar
Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf. Landsréttur hafði áður staðfest ákvörðunina sbr. tilkynningu Símans hf. dags. 12. febrúar 2026.
Síminn hf. óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn hafnaði beiðni félagsins um áfrýjunarleyfi. Afstaða Hæstaréttar er Símanum hf. veruleg vonbrigði en það er mat félagsins að upplýsingarnar sem um var deilt í málinu hefðu verið birtar opinberlega með viðeigandi hætti og í samræmi við það sem þekkist í sambærilegum málum.
Síminn hf. hefur þegar greitt sektina en ekki gjaldfært. Verður sektin gjaldfærð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en gjaldfærslan mun ekki hafa áhrif á áður útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026.
