SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Stöðugur rekstur á öðrum ársfjórðungi

Síminn hf. - Stöðugur rekstur á öðrum ársfjórðungi

Helstu niðurstöður úr rekstri á 2F 2020

  • Á ársfjórðungnum var gjaldfærð 500 milljón króna stjórnvaldssekt vegna ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá því í lok maí sem hefur neikvæð áhrif á afkomu fjórðungsins. Félagið hefur kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og mun niðurstaða væntanlega liggja fyrir síðar á þessu ári.
  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2020 námu 7.276 milljónum króna samanborið við 7.115 milljónir króna á sama tímabili 2019 og hækka því um 161 milljón krónur eða 2,3%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 1.938 milljónum króna á 2F 2020 samanborið við 2.602 milljónir króna á sama tímabili 2019 og lækkar því um 664 milljónir króna eða 25,5% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 26,6% fyrir annan ársfjórðung 2020 en var 36,6% á sama tímabili 2019.
  • Hagnaður á 2F 2020 nam 83 milljónum króna samanborið við 798 milljónir króna á sama tímabili 2019 .
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 3.095 milljónum króna á 2F 2020 en var 2.087 milljónir króna á sama tímabili 2019. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.667 milljónum króna á 2F 2020 en 1.735 milljónum króna á sama tímabili 2019.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 15,4 milljörðum króna í lok 2F 2020 en voru 16,2 milljarðar króna í árslok 2019. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 14,5 milljarðar króna í lok 2F 2020 samanborið við 16,0 milljarðar króna í árslok 2019.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 178 milljónum króna á 2F 2020 en voru 269 milljónir króna á sama tímabili 2019. Fjármagnsgjöld námu 203 milljónum króna, fjármunatekjur voru 44 milljónir króna og gengistap var 19 milljón króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 56,5% í lok 2F 2020 og eigið fé 36,5 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Annar ársfjórðungur var afar viðburðaríkur hjá Símasamstæðunni. Hinn undirliggjandi rekstur gengur vel en mörg stór frávik eru frá sama fjórðungi árið áður, fyrst og fremst hjá Símanum hf.

Samdráttur í EBITDA á milli annars fjórðungs 2020 og 2019 var þannig 664 m.kr., en 298 m.kr. sé horft á fyrri helming 2020 í samanburði við sama tímabil 2019. Helsta ástæðan er að Samkeppniseftirlitið sektaði Símann um 500 m.kr. vegna meintra brota á sáttum félagsins við eftirlitið. Án þessarar sektar hefði EBITDA fyrstu sex mánuði ársins hækkað um rúmar 200 m.kr. miðað við sama tímabil 2019 sem sýnir einmitt styrk rekstursins og árangur tímabilsins. Sektin var gjaldfærð á öðrum ársfjórðungi og greidd í byrjun þriðja ársfjórðungs. Síminn telur Samkeppniseftirlitið hafa komist að rangri niðurstöðu sem skaði neytendur og samkeppni. Félagið hefur því kært ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem kveður upp sinn úrskurð innan skamms. Fækkun ferðamanna til og frá landinu lækkaði reikitekjur um 110 m.kr. milli ára á fjórðungnum auk þess sem tekjur af frelsiskortum ferðamanna lækkuðu um 20 m.kr. Söluhagnaður Kringlubúðar var 164 m.kr. á öðrum fjórðungi árið 2019, sem hefur áhrif á samanburð milli ára. Uppsagnakostnaður á fjórðungnum var samtals 125 m.kr. en var óverulegur árið áður. Hefur starfsmönnum Símans hf. fækkað umtalsvert undanfarin ár og eru stöðugildi nú rúmlega 550 í samstæðunni.

Margt gekk betur á fjórðungum en á fyrra ári og að hluta betur en vonast mátti til. Til að mynda hélt upplýsingatæknirekstur Sensa áfram að skila góðri niðurstöðu á ársfjórðungnum, eftir einstaklega vænlega byrjun ársins. Verkefnastaða félagsins er góð inn í haustið. Ýmis rekstrarkostnaður samstæðunnar lækkaði, svo sem starfsmannakostnaður, ferðalög og annað sem stafar af faraldrinum. Markaðs-, tölvu- og hugbúnaðarkostnaður lækkaði einnig, en tekjur sem nokkur óvissa ríkti um, svo sem auglýsingatekjur, héldu sínu striki. Áskriftir að efnisþjónustu og fjarskiptaþjónustu Símans voru einnig stöðugar og vanskil vegna slæms atvinnuástands og erfiðleika í rekstri margra fyrirtækja hafa enn ekki komið fram svo neinu nemur. Það getur þó breyst hratt með haustinu, en fram til þessa hefur heimsfaraldurinn og þær miklu takmarkanir sem honum hafa fylgt í heild dregið EBITDA samstæðunnar óverulega niður.

Rekstur Mílu er stöðugur og traustur sem endranær. Míla mun taka við fleiri verkefnum frá Símanum á næstu mánuðum, svo sem rekstri farsímadreifikerfis og IP-nets, og þannig verða stærra hlutfall samstæðunnar. Verið er að skoða að fjármagna Mílu sérstaklega í stað þess að fjármagna samstæðuna sem eina einingu.

Næstu mánuðir munu fara í að skerpa á verkaskiptingu innan samstæðunnar og treysta í sessi lækkaðan rekstrarkostnað, sem hefur verið lagaður að nýju efnahagsástandi. Samkvæmt könnunum á afstöðu neytenda hefur Síminn hf. bætt þjónustu sína undanfarin misseri og við hyggjumst halda áfram á þeirri braut. Þróaðir verða fjölbreyttari möguleikar í notkun sjónvarpsvara okkar og verið er að huga að nýjungum í vörupökkun og verðlagningu. Síminn hefur samið um aðgang að ljósleiðaraneti Gagnaveitu Reykjavíkur og mun geta boðið vörur sínar yfir það víðfeðma net á næsta ári.“

 

Kynningarfundur 26. ágúst 2020

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:

 

Nánari upplýsingar

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ( )

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ( )



Viðhengi

EN
25/08/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum víxlaflokki Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum víxlaflokki SIMINN261022, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Alls bárust tilboð að nafnvirði kr. 1.520.000.000, á bilinu 8,10% - 8,30% flötum vöxtum. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 1.100.000.000 á 8,153% flötum vöxtum. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 22. apríl 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku víxlann...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í flokknum SIMINN261022, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN261022 er nýr 6M víxill með lokagjalddaga þann 22. október 2026. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötum vöxtum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöð...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðu...

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðunar fjármálaeftirlitsnefndar Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf. Landsréttur hafði áður staðfest ákvörðunina sbr. tilkynningu Símans hf. dags. 12. febrúar 2026. Síminn hf. óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn hafnaði beiðni félagsins um áfrýjunarleyfi. Afstaða Hæstaréttar er Símanum hf. ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir Í dag, 26. mars 2026, var hlutafé Símans hf. lækkað um 75.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 12. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Með breytingunni fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 148.868.692 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 73.868.692 hluti eða sem nemur 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með k...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch