SVN SILDARVINNSLAN

Síldarvinnslan hf. - Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2026

Síldarvinnslan hf. - Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2026

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og rafrænt þann 19. mars 2025. Mætt var fyrir um 88 % atkvæða.

Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins:

Ársreikningar

Aðalfundur samþykkti ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélagsreikning vegna ársins 2025.

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 verði 1,67 kr. á hlut eða 3.075 milljónir kr. (um 24,6 milljónir USD á lokagengi ársins 2025). Arðurinn verður greiddur 25. mars 2026. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 23. mars 2026.

Tillaga um starfskjarastefnu

Tillaga að starfskjarastefnu var lögð fram og var hún samþykkt.

Ákvörðun um þóknun til stjórnar félagsins

Samþykkt var að stjórnarlaun vegna ársins 2026 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 750.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 500.000. Varamenn verði með kr. 250.000 á mánuði.

Kosning stjórnar félagsins

Í stjórn félagsins voru kjörin: Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn: Ingi Jóhann Guðmundsson og Katla Þorsteinsdóttir. Samsetning stjórnar uppfyllir ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutfall.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir næsta ár verði endurskoðunarfélagið PricewaterhouseCoopers ehf.

Tillaga um endurskoðunarnefnd

Samþykkt var tillaga stjórnar um tilnefningu nefndarmanns í endurskoðunarnefnd. Tilnefndur var Guðmundur Kjartansson, löggiltur endurskoðandi.

Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur samþykkti að framlengja heimild stjórnar félagsins til að kaupa eigin hluti í félaginu til næstu átján mánaða.

Samfélagsskýrsla Síldarvinnslunnar 2025

Samfélagsskýrsla Síldarvinnslunnar fyrir árið 2025 var gefin út og kynnt á aðalfundi félagsins í Neskaupstað. Þetta er í sjöunda sinn sem skýrslan er gefin út og mikilvægur liður í upplýsingagjöf félagsins um áhrif þess á nærsamfélög og umhverfið. Í skýrslunni má meðal annars finna nákvæmt umhverfisbókhald fyrir árið 2025 og aðrar mikilvægar upplýsingar sem tengjast stjórnarháttum, sjálfbærni og samfélagsmálum. Í skýrslunni má finna helstu áfanga ársins 2025, yfirlit um samfélagsverkefni sem félagið studdi á árinu 2025 og samfélagsspor sem félagið skildi eftir sig á árinu.

Upplýsingar í skýrslunni ná til Síldarvinnslunnar og dótturfélaga á Íslandi. Sem fyrr tekur skipulag skýrslunnar mið af leiðbeiningum frá Nasdaq Ísland kauphöllinni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja með sérstaka áherslu á sjálfbærni. Við gerð skýrslunnar var einnig horft til þeirra áhersluatriða sem felast í sjálfbærnistefnu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Umsvif Síldarvinnslunnar hafa aukist á síðustu árum og félagið er í dag einn mikilvægasti atvinnurekandi í þeim samfélögum sem samstæðan starfar. Kjarni starfseminnar fer fram á landsbyggðinni og félagið er stærsta skráða félagið í Nasdaq kauphöllinni sem staðsett er utan höfuðborgarsvæðisins. Samfélagsskýslan er mikilvægur liður í því að greina hvað er vel gert og hvar eru tækifæri til umbóta, því ávallt eru möguleikar til að gera betur.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar:

„Markmiðið með útgáfu skýrslunnar er mikilvægt, að stuðla að auknu gagnsæi og segja frá því hvernig starfsemi félagsins hefur áhrif á umhverfi og samfélög. Ófjárhagslegar upplýsingar vegna starfsemi félagsins eru ekki síður mikilvægar en fjárhagslegar. Við höfum nú gefið skýrsluna út sjö ár í röð og hún er orðin mikilvæg varða í starfsemi félagsins.

Skýrslan er fræðandi um fjölbreytta anga starfseminnar og er gott og aðgengilegt yfirlit stjórnarhætti, umhverfisáhrif, sögu og samfélagsspor. Síldarvinnslan vill vera í fararbroddi á sviði samfélagslegrar ábyrgðar. Allt frá stofnun félagsins árið 1957 hefur fyrirtækið verið kjölfestufyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi og því fylgir mikil ábyrgð. Síldarvinnslan er einn af stærstu atvinnurekendum á Austurlandi og starfsemi fyrirtækisins hefur veruleg áhrif á þau samfélög sem hún starfar í.“

Samfélagsskýrslan er meðfylgjandi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins

Viðhengi



EN
20/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2026

Síldarvinnslan hf. - Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og rafrænt þann 19. mars 2025. Mætt var fyrir um 88 % atkvæða. Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins: Ársreikningar Aðalfundur samþykkti ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélagsreikning vegna ársins 2025. Tillaga um greiðslu arðs Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 verði 1,67 kr. á hlut eða 3.075 milljónir kr. (um 24,6 milljónir USD á lokagengi ársins 2025). Arðurinn verður greiddur 25. mars 2026. Réttu...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlega...

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026 Fundurinn er haldinn rafrænt og í Safnahúsinu Neskaupstað þann 19. mars 2026 kl. 14. Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 19. mars 2026. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara. Fimm einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar en tveir til varastj...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025 Árið 2025 var gott rekstrarár.Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.Sala góð og flestir markaðir sterkir.Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. Heildare...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2025 á fimmtudaginn kemur 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður aðgengileg þann sama dag kl. 16 þar sem Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og fer yfir ástand og horfur. Vefstreymið má nálgast á . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á

 PRESS RELEASE

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Skýrsla stjórnarEndurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingarTekin ákvörðun um greiðslu arðsTillaga stjórnar um starfskjarastefnuÁkveðin þóknun til stjórnar félagsins og...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch