SVN SILDARVINNSLAN

Viðræður um kaup á helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf.

Viðræður um kaup á helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf.

Stjórn Síldarvinnslunnar hf. hefur samþykkt að hefja viðræður við Samherja hf. um kaup á helmingshlut í sölufélaginu Ice Fresh Seafood ehf. Telur stjórnin það rökrétt framhald af vexti og auknum umsvifum Síldarvinnslunnar hf. á síðustu árum, m.a. með kaupum á Vísi hf., að kanna frekari möguleika á því að  styrkja sölu- og markaðsmál félagsins.

Ice Fresh Seafood ehf. hefur lengi verið leiðandi fyrirtæki í sölu- og markaðssetningu sjávarafurða frá Íslandi og hefur meðal annars séð um sölu á hluta afurða Síldarvinnslunnar og Vísis á undanförnum árum. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.

Ice Fresh Seafood ehf. er að fullu í eigu Samherja hf. sem er eigandi að 30,06 % hlut í Síldarvinnslunni hf. Með vísan til ákvæða laga og starfsreglna stjórnar hefur stjórnarformaður Síldarvinnslunnar hf., Þorsteinn Már Baldvinsson, sem er jafnframt forstjóri Samherja hf., því ekki tekið þátt í meðferð máls þessa og ákvörðun innan stjórnar Síldarvinnslunnar hf.

Gerð verður nánari grein fyrir efni og niðurstöðum fyrirhugaðra viðræðna og viðskipta um leið og slíkar upplýsingar liggja fyrir.

Stjórn Síldarvinnslunnar hf.



EN
29/03/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Síldarvinnslan hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Meðfylgjandi er tilkynning um viðskipti aðila sem er nákomin stjórnanda Síldarvinnslunnar hf. á grundvelli 19. gr. MAR reglugerðarinnar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2026

Síldarvinnslan hf. - Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og rafrænt þann 19. mars 2025. Mætt var fyrir um 88 % atkvæða. Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins: Ársreikningar Aðalfundur samþykkti ársreikning samstæðu félagsins og móðurfélagsreikning vegna ársins 2025. Tillaga um greiðslu arðs Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 verði 1,67 kr. á hlut eða 3.075 milljónir kr. (um 24,6 milljónir USD á lokagengi ársins 2025). Arðurinn verður greiddur 25. mars 2026. Réttu...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlega...

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2026 Fundurinn er haldinn rafrænt og í Safnahúsinu Neskaupstað þann 19. mars 2026 kl. 14. Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 19. mars 2026. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara. Fimm einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar en tveir til varastj...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025 Árið 2025 var gott rekstrarár.Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.Sala góð og flestir markaðir sterkir.Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. Heildare...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2025 á fimmtudaginn kemur 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður aðgengileg þann sama dag kl. 16 þar sem Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og fer yfir ástand og horfur. Vefstreymið má nálgast á . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch