SIMINN Siminn HF

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefninganefnd

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefninganefnd

Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2020 kl. 16:00 að Nauthól við Nauthólsvík, 101 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar og í tilnefningarnefnd í Símanum hf. rann út þann 7. mars síðastliðinn kl. 16:00.

Framboð til stjórnar

Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins. Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga.

  • Bjarni Þorvarðarson
  • Helga Valfells
  • Jón Sigurðsson
  • Kolbeinn Árnason
  • Sylvía Kristín Ólafsdóttir

Samkvæmt samþykktum félagsins eru fimm í stjórn og er því sjálfkjörið í stjórn félagsins.

Framboð í tilnefningarnefndar

Í samræmi við núgildandi starfsreglur tilnefningarnefndar Símans hf. skulu tveir nefndarmenn kjörnir af aðalfundi á hverju ári. Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd fram að næsta aðalfundi:

  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir
  • Steinunn Kristín Þórðardóttir

Í samræmi við tillögu stjórnar um breytingu á skipun í tilnefningarnefnd félagsins hyggst stjórn Símans tilnefna óháðan aðila til setu í tilnefningarnefnd Símans hf. sem kosið verður um á fundinum í stað þess að stjórn tilnefni einn aðila úr stjórn í nefndina.







Viðhengi

EN
09/03/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Landsréttur sýknar Seðlabanka Íslands

Síminn hf. - Landsréttur sýknar Seðlabanka Íslands Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf, og tilkynningar þann 16. desember 2024 um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í sama efni. Landsréttur kvað upp dóm í dag þar sem dómur Héraðsdóms var staðfestur og þannig hafnað að fella úr gildi framangreinda ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands. Málskostnaður var felldur nið...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Niðurstöður hluthafafundar 28. janúar 2026

Síminn hf. - Niðurstöður hluthafafundar 28. janúar 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður hluthafafundar Símans hf. sem haldinn var fyrr í dag. Attachment

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Endanleg dagskrá og tillögur hluthafafundar 28. janúar 20...

Síminn hf. - Endanleg dagskrá og tillögur hluthafafundar 28. janúar 2026 Stjórn Símans hf. boðaði til hluthafafundar í félaginu þann 7. janúar sl. sem haldinn verður miðvikudaginn 28. janúar 2026 klukkan 16 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri dagskrá og tillögum fyrir fundinn og skoðast þær því sem endanlegar. Endanlega dagskrá og tillögur er að finna hér í viðhengi. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Bráðabirgðaniðurstaða ársins 2025 og kynning fyrir hlutha...

Síminn hf. – Bráðabirgðaniðurstaða ársins 2025 og kynning fyrir hluthafafund 28. janúar 2026 Hluthafafundur Símans hf. verður haldinn miðvikudaginn 28. janúar nk., sbr. meðfylgjandi fundarboðun sem birt var þann 7. janúar sl. Á fundinum verður borin upp tillaga um heimild til hækkunar hlutafjár félagsins í tengslum við kaup á Opnum Kerfum hf. og Öryggismiðstöð Íslands hf. Á fundinum verður jafnframt farið yfir meðfylgjandi kynningu forstjóra um kaup á öllu hlutafé í Opnum Kerfum hf., Öryggismiðstöð Íslands hf. og Greiðslumiðlun Íslands ehf. og sýn á nýja samstæðu samhliða ytri vexti. Viðsk...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Tilkynning frá tilnefningarnefnd Símans

Síminn hf. - Tilkynning frá tilnefningarnefnd Símans Tilnefningarnefnd Símans gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar félagsins. Tilgangur nefndarinnar er að huga að hagsmunum allra hluthafa og tilnefna frambjóðendur í stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þekkingu og reynslu stjórnar sem heild. Í framhaldi metur nefndin frambjóðendur út frá þekkingu og reynslu og hvort þeir geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samþykktum félagsins, lögum um hlutafélög nr. 2/1995, auk annarra laga og reglugerða sem gilda um félagið. Á grundvelli niðurstaðna mun nefndin leggja fram ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch