SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 35. viku 2020 keypti Síminn hf. 15.000.000 eigin hluti að kaupverði 98.265.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
24.8.202009:363.000.0006,43019.290.000149.684.955
25.8.202014:573.000.0006,49519.485.000152.684.955
26.8.202009:453.000.0006,49019.470.000155.684.955
27.8.202012:173.000.0006,60019.800.000158.684.955
28.8.202011:413.000.0006,74020.220.000161.684.955
  15.000.000 98.265.000161.684.955

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2020. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2021, en þó aldrei lengur en til 12. mars 2021 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Síminn átti 146.684.955 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 161.684.955 eða sem nemur 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 78.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,89% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 497.925.000 kr.

Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi  .

EN
31/08/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í flokknum SIMINN261022, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN261022 er nýr 6M víxill með lokagjalddaga þann 22. október 2026. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötum vöxtum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöð...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðu...

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðunar fjármálaeftirlitsnefndar Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf. Landsréttur hafði áður staðfest ákvörðunina sbr. tilkynningu Símans hf. dags. 12. febrúar 2026. Síminn hf. óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn hafnaði beiðni félagsins um áfrýjunarleyfi. Afstaða Hæstaréttar er Símanum hf. ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir Í dag, 26. mars 2026, var hlutafé Símans hf. lækkað um 75.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 12. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Með breytingunni fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 148.868.692 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 73.868.692 hluti eða sem nemur 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með k...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars 2026 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 75.000.000 að nafnverði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Eftir lækkun verður hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Beiðni hefur verið send til Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd fimmtudaginn 26. mars 2026. Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch