SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Útboð á víxlum 11. október 2022

Síminn hf. - Útboð á víxlum 11. október 2022

Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum þriðjudaginn 11. október 2022. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki SIMINN230425.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða, og er þátttaka í útboðinu aðeins heimil aðilum sem teljast hæfir fjárfestar og hafa verið flokkaðir sem fagfjárfestar skv. 13. tl. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021 eða teljast viðurkenndir gagnaðilar. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. og 1. mgr. 3. gr. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindan flokk skuldaskjals verða birt á vefsíðu félagsins: .

Skila skal inn tilboðum á netfangið fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 11. október 2022. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 18. október 2022.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu, Fossar fjárfestingabanki hf., , s: 522 4000.

Óskar Hauksson, fjármálastjóri, .

Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, .



EN
06/10/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum víxlaflokki Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum víxlaflokki SIMINN261022, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Alls bárust tilboð að nafnvirði kr. 1.520.000.000, á bilinu 8,10% - 8,30% flötum vöxtum. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 1.100.000.000 á 8,153% flötum vöxtum. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 22. apríl 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku víxlann...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í flokknum SIMINN261022, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN261022 er nýr 6M víxill með lokagjalddaga þann 22. október 2026. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötum vöxtum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöð...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðu...

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðunar fjármálaeftirlitsnefndar Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf. Landsréttur hafði áður staðfest ákvörðunina sbr. tilkynningu Símans hf. dags. 12. febrúar 2026. Síminn hf. óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn hafnaði beiðni félagsins um áfrýjunarleyfi. Afstaða Hæstaréttar er Símanum hf. ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir Í dag, 26. mars 2026, var hlutafé Símans hf. lækkað um 75.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 12. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Með breytingunni fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 148.868.692 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 73.868.692 hluti eða sem nemur 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með k...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch