A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Uppgjör 3. ársfjórðungs 2020 og uppfærð afkomuspá

VÍS: Uppgjör 3. ársfjórðungs 2020 og uppfærð afkomuspá

Árshlutareikningur félagsins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 22. október 2020.

Helstu niðurstöður þriðja ársfjórðungs 2020.

- Hagnaður var 1.032 m.kr. samanborið við 394 m.kr. tap á 3F 2019

- Iðgjöld voru 5.735 m.kr. samanborið við 6.085 m.kr. 3F 2019

- Fjárfestingatekjur voru 1.110 m.kr  en voru neikvæðar um 237 m.kr. á sama tímabili í fyrra

- Arðsemi eigin fjár var jákvæð um 7,0% en var  neikvæð um 2,7% á sama tímabili 2019

- Samsett hlutfall var 94,5% samanborið við 99,7% á sama tímabili 2019

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:

„Árangur í fjárfestingum var  góður á þriðja ársfjórðungi þrátt fyrir áskoranir á eignamörkuðum vegna heimsfaraldursins. Fjárfestingatekjur  námu 1.110 m.kr. og nafnávöxtun var 2,9%. Afkomu af fjárfestingum má einkum rekja til ávöxtunar af skráðum hlutabréfum en hækkun skráðra hlutabréfa nam 7,2%. Einnig var afkoma af erlendum skuldabréfasjóðum góð í ársfjórðungnum.

Viðsnúningur var í vátryggingarekstri milli fjórðunga. Afkoma vátryggingarekstrarins í þriðja ársfjórðungi var jákvæð um  358 milljónir króna ─ samanborið við tap upp á 158 milljónir króna í öðrum ársfjórðungi 2020. Iðgjöld tímabilsins voru 5.735 milljónir króna samanborið við 6.085 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Helstu ástæður fyrir lækkun iðgjalda er samdráttur í ferðaþjónustu og  minni umsvif í erlendri endurtryggingastarfsemi. Samsett hlutfall fjórðungsins var 94,5%.

Stafrænir sigrar

Við unnum ýmsa stafræna sigra á ársfjórðungnum. Við settum nýja heimasíðu í loftið en þar var allt kapp lagt á að útskýra tryggingar á mannamáli og veita góð ráð um forvarnir ─ sem stuðla að því að viðskiptavinir okkar lendi sjaldnar í tjónum.

Þrátt fyrir að lítið sé um ferðalög í heimsfaraldrinum, þá höfum haldið áfram að þróa stafrænar lausnir í ferðatjónum. Afgreiðsla ferðatjóna er nú orðin sjálfvirk sem þýðir einfaldlega betri og hraðari þjónusta. Ef viðskiptavinir okkar verða fyrir skakkaföllum á ferðalögum erlendis, þá býður lausnin upp á sjálfvirka úrlausn mála. Við erum því tilbúin að veita enn betri þjónustu um leið og landinn fer að ferðast á ný.

Við lokuðum þjónustuskrifstofunum aftur í þessari bylgju heimsfaraldursins og veittum þjónustu með öðrum leiðum. Þess má geta að stærsta þjónustuskrifstofan okkar er á netinu og er opin allan sólarhringinn. Hlutfall rafrænna tjónstilkynninga hefur aldrei verið hærra eða tæplega 60%. Rúmlega 90% af tilkynningum um tjón á innbúi eru nú tilkynnt rafrænt ─ og er rúmlega helmingur af þeim í sjálfvirkri afgreiðslu. Við erum stolt af því, enda erum við á stafrænni vegferð.

Jákvætt viðhorf gagnvart Ökuvísi

Samvinnan við viðskiptavini okkar um þróun á Ökuvísi hefur verið mjög lærdómsrík. Þetta er ný nálgun í tryggingum hér á landi og er mikilvægt að rödd viðskiptavina heyrist frá byrjun. Við höfum því fengið viðskiptavini að borðinu til þess að hjálpa okkur að þróa og móta Ökuvísi. Þessi endurgjöf skiptir miklu máli, því við ætlum okkur að bjóða upp á vöru og þjónustu sem mætir raunverulegri þörf viðskiptavina okkar. Verkefninu miðar vel áfram en einn af þeim þáttum sem við hugum sérstaklega vel að ─ er að við séum ávallt að vinna í samræmi við persónuverndarlög. Gert er ráð fyrir fyrstu útgáfu nýs apps fyrir lok þessa árs. Þess má einnig geta að Íslendingar eru almennt jákvæðir gagnvart Ökuvísi, samkvæmt nýrri könnun. Þessi niðurstaða gefur okkur byr undir báða vængi ─ og hvetur okkur áfram.



Við lítum svo á að þessir stafrænu sigrar séu mikilvægar vörður í að verða stafrænt þjónustufyrirtæki. Við erum með skýra sýn og skýr markmið. Þrátt fyrir óvissu í samfélaginu vegna heimsfaraldursins höldum við ótrauð áfram ─ og lítum bjartsýn til framtíðar.“

Horfur

Uppfærð afkomuspá gerir ráð fyrir því að samsett hlutfall fyrir árið 2020 verði 105,5%, ávöxtun fjáreigna verði 8,2% og hagnaður fyrir skatta 390 milljónir. Afkomuspá til næstu 12 mánaða gerir ráð fyrir 96,8% samsettu hlutfalli, 5,6% ávöxtun fjáreigna og hagnaði fyrir skatta upp á rúmlega 2,3 milljarða.

Kynningarfundur

Kynningarfundurinn vegna uppgjörsins  fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður eingöngu rafrænn. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 23. október, klukkan 8:30. Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Fundurinn verður í beinni útsendingu með fjarfundarbúnaði Cisco Webex. Hægt er að tengjast fundinum með vafra eða hlaða niður hugbúnaði frá Cisco. Nánari leiðbeiningar um hvernig eigi að tengjast fundinum má finna á vefslóðinni: 

Hægt er að tengja sig inn á fjarfundinn hér:    Einnig verður hægt að nálgast upptöku af fundinum á sömu vefslóð.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér:  

Fjárhagsdagatal 

Ársuppgjör 2020  ||  25. febrúar 2021

Aðalfundur 2021  ||  19. mars 2021

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu

Viðhengi

EN
22/10/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch